kosningalög.
Herra forseti. Þetta er annað atriði sem kemur mér ekki á óvart að menn velti fyrir sér. Það gerði nefndin reyndar mjög mikið og velti fyrir sér ýmsum leiðum en varð á endanum sammála um að leggja þetta svona til, að rýmka þennan sjálfvirka rétt, tvöfalda hann úr átta árum í 16 en láta þar við sitja. Ég held að þeim hafi verið það mjög ljóst að þetta væri eitthvað sem líklegt væri að bæri á góma á Alþingi. Að sjálfsögðu er hægt að bæta þarna aftan við ferli þar sem menn eiga þess kost að endurnýja rétt sinn. Ég held að það sé alveg ljóst að það yrði mun umfangsminna með þessari sjálfvirku rýmkun. Ef menn kynna sér gögn um það gerist það æ sjaldnar ef fólk hefur búið einn og hálfan, tvo áratugi erlendis að það sé enn þá með þau tengsl eða telji sig bara eiga að vera að skipta sér af því sem hér fer fram. Það eru þó alltaf einhverjir. Og ég vek athygli á því að eins og bráðabirgðaákvæðið er útfært myndu allir sem hafa þennan rétt í dag fá 16 ár í viðbót. Það myndi þýða það að þeir sem hafa verið að nýta sér þennan rétt eða styttra en átta ár eru liðin síðan þeir fluttu út eða þeir hafa endurnýjað hann einu sinni eða tvisvar væru þá á kjörskrá í 20 ár, 24 ár, 28 ár samfellt án þess að hafa nokkurn tíma flutt lögheimilið heim til Íslands. Mér er mjög til efs að á það myndi reyna mikið umfram það. En þótt það sé ekki nema einn maður þá geta menn sagt að það sé sama grundvallaratriðið og ég geri engar athugasemdir við það að nefndin fari vel ofan í saumana á þessu. Ég hef ekki áhuga á því að taka af mönnum einn eða neinn rétt sem þeir telja mikilvægan. Ég minni þó á að stjórnarskráin er með lögheimili sem grundvallarreglu en heimilar löggjafanum að víkja frá því með undanþægum ákvæðum. Það hefur löggjafinn gert og það hefur verið að rýmka frekar en þrengjast á undanförnum árum. Nú er þetta ekki lengur (Forseti hringir.) hátíðleg kæra heldur tilkynning til Þjóðskrár, einfaldara í vöfum en áður var. Þannig að þetta er atriði sem er sjálfsagt að nefndin skoði.