kosningalög.
Herra forseti. Ég held að þessi þversögn sem ég skynja þarna á milli gömlu yfirkjörstjórnarinnar og þeirrar nýju gæti líka verið eitthvað sem endurspeglar innleiðingarfasann sem þarf að fara í gegnum með ný lög. Kannski verður kerfið ekki tilbúið á þessu hálfa ári sem gæti liðið frá samþykkt laganna þar til að landskjörstjórn geti miðlað til yfirkjörstjórna sveitarfélaganna með fullnægjandi hætti. En þetta er eitthvað sem við skoðum í nefndinni, held ég.
Mig langar að spyrja út í þá tillögu í frumvarpinu að kjósandi sem kýs utan kjörfundar megi ekki kjósa á kjörfundi vegna þess að eitt af því, við skulum segja fallegasta sem mér hefur þótt í kosningakerfinu á Íslandi er hvað fólk sem framkvæmir kosningar gengur langt í að sjá til þess að vilji hvers einasta kjósanda nái fram að ganga. Þarna finnst mér stigið dálítið í ranga átt með það. Ef fólk skiptir um skoðun og kemur sér á kjörstað eftir að hafa greitt atkvæði utan kjörfundar og vill greiða atkvæði á kjörfundi þá sé ég ekki alveg hvaða rök eru fyrir því að synja viðkomandi um það. Og einmitt varðandi fegurðina í hinu smáa í íslenska kosningakerfinu er kannski hægt að benda á t.d. bráðabirgðaákvæði I í þessu frumvarpi sem snýst um kosningarrétt þeirra sem voru danskir ríkisborgarar hér á landi 1994 sem samkvæmt greinargerð voru þrír einstaklingar. En auðvitað höldum við því inni af því að þetta eru þrjú atkvæði sem eiga rétt á því að skila sér í kjörkassa. Ég velti fyrir mér hvort sama eigi ekki við um fólkið sem greiðir atkvæði utan kjörfundar.
Og svo á minni síðustu sekúndu, kom ekki til tals að lögbinda reglur um kynjahlutföll á framboðslistum (Forseti hringir.) sem eru nauðsynleg, held ég, til þess að við getum verið með frambærilegt hlutfall kynja hér á þingi? Innri reglur flokka (Forseti hringir.) duga greinilega ekki til. Það eru alltaf nokkrir flokkar sem þráskallast við. Þó að meiri hluti flokka standi sig vel þá þurfum við greinilega fastari reglur til að ná utan um þetta.