kosningalög.
Forseti. Að nokkurn veginn öllu leyti, 99% af þessu frumvarpi eða svo, þetta er stórt frumvarp og 99% er mikið, en líka 1%, er þetta mjög gott og til mikilla bóta. Ef ekki væri fyrir það, aðallega, sem ég nefndi í andsvari áðan um skerðinguna á kosningarrétti einstaklinga með lögheimili erlendis, að takmarka hann við 16 ár, hefðum við örugglega verið meðflutningsmenn á þessu frumvarpi. En við drögum línuna við þetta atriði um skerðingu á kosningarrétti. Það er grunnregla hjá okkur Pírötum, hluti af okkar grunngildum, að efla og vernda borgararéttindi. Eitt af grunnatriðum í lýðræðissamfélagi er að geta tekið þátt í kosningum og þar af leiðandi tökum við ekki þátt í að skerða kosningarrétt. Við gerum mjög alvarlega athugasemd við það atriði. Vissulega eru ekkert rosalega margir sem nýta sér þetta en þegar það er einn er það nóg að mínu mati.
Sömu mótrök eru fyrir því í rauninni að viðhalda kosningarréttinum og að sleppa þessari svokölluðu kæru inn á kjörskrá. Ef tengingin minnkar og þátttaka minnkar gerist það jafn sjálfkrafa í rauninni, eins og ef viðkomandi heldur kosningarréttinum, hvort hann tekur þátt eða ekki. Þannig að ef það er skorið á við 16 ár og það eru einungis fáir sem nýta kosningaréttinn eftir það ætti það ekki að muna miklu á því og að hafa kosningarétt áfram og leyfa þeim fáu sem nýta sér hann áfram að gera það. Það getur átt við í t.d. forsetakosningum sem hafa kannski sögulega séð ekkert endilega gerst mjög oft en getur vel verið að gerist oftar í framtíðinni. Þetta getur líka átt við það að þó að viðkomandi sé með lögheimili erlendis þá sé hann ekki með það nema af því að hann dvelur rétt rúmlega hálft árið erlendis. Hann sé í miklum samskiptum við Ísland, land og þjóð, en sökum starfa eða annars sé hann sjö, átta mánuði erlendis. Hann heldur þannig tengingu við landið þó að 30, 40 ár líði. Það eru kannski ekki mörg tilvik en eins og ég segi, eitt tilvik er nóg.
Hin tvö atriðin sem við gerum athugasemdir við eru, eins og hefur komið fram í umræðunni, í fyrsta lagi að geta ekki greitt aftur atkvæði á kjördag. Þegar allt kemur til alls er kjördagur það sem skiptir máli. Allt annað, utankjörfundaratkvæði, póstatkvæðin og allt það, eru aukaréttindi til að geta tekið þátt í kosningum en það er kosningadagsetningin sem skiptir máli. Ef það kemur eitthvað upp á þessum lengri tíma frá því að kosning hefst fram að kjördegi, sem hefur gerst þó nokkrum sinnum á undanförnum árum og valdið því kosningar hafa borið að með stuttum fyrirvara, teljum við tvímælalaust að fólk eigi að geta nýtt rétt sinn á kjördag.
Svo er að lokum mjög einfalt en gríðarlega mikilvægt atriði sem við leggjum til. Það er einfaldlega sú viðbót í reglugerðarheimild að á undan orðunum „og innsiglun kjörgagna“ komi: afstemmingu. Afstemming á öllum kjörgögnum skiptir rosalega miklu máli í gæðavottun á kosningum. Þar sé ég mun á gæðavottun á kosningum annars vegar og hins vegar aðgengi að kosningunum. Eins og kom fram í máli hv. þm. … Birgis Ármannssonar. Ég er slæmur með nöfn, það gerist hjá mér að ég verð nafnablindur. Það var mjög óþægilegt þegar ég var í doktorsnámi að muna ekki nöfnin á öllum sem skrifuðu greinar, ég mundi efni greinanna en ekki hver skrifaði þær. Það var stundum ekkert voðalega gaman að tala við fólk um rannsóknir því að nöfnum var hent fram fram og til baka og ég vissi ekkert hvað þau voru að tala um. En í máli hv. þingmanns var fjallað um nauðsyn þess að kosningarnar séu öruggar, á móti réttinum og aðgenginu að kosningum. Að sjálfsögðu viljum við að kosningar séu öruggar og þar kemur afstemming gagna inn sem gæðaeftirlit á kosninguna í heild sinni, hversu mikið af kjörgögnum var notað og hversu mikið var í afgang og ýmislegt fleira. Þetta er mjög einföld viðbót af því að hún kemur bara inn í reglugerðarheimild þar sem er hægt að vinna með hvernig gæðaeftirlit er og afstemming á notkun á kjörgögnum fer fram eftir því sem á líður. Það er hægt að bæta því við á næstu árum og gera það betra og betra. En það skiptir máli að í lögunum sé skilyrði um að reglugerðin fjalli um afstemmingu á kjörgögnum.
Vegna þess sem hv. þm. Birgir Ármannsson talaði um varðandi póstkosningu þá langar mig til að minnast á það að ég hef kosið erlendis. Það getur verið gríðarlega flókið og maður hefur heyrt sögur af því að fólk er að taka lestir í níu klukkutíma bara til að komast og hitta einhvern ræðismann o.s.frv. Ég tel viðbótina um póstkosningu vera gríðarlega mikilvæga til að tryggja aðgengi að kosningum. Mér finnst það mikilvægara en öryggið hvað kosningar varðar og gögnin hvað varðar póstkosningu gera kosninguna ekki svo óörugga að það ætti að valda veseni. Það að auðvelda fólki þátttöku er mikilvægara. Það að leyfa fólki að nýta kosningaréttinn er mikilvægara, sérstaklega þegar áhættan er eins lítil og hún er með aðferð eins og póstkosningu.
Þegar á heildina er litið vonast ég til þess að frumvarpið fái tiltölulega skjóta og góða meðferð í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ferlið er búið að vera mjög langt. Eins og hv. flutningsmaður kom inn á er málið búið að fara í gegnum samráðsferli á mörgum stöðum. Það er búið að fara í gegnum mjög mörg gæðatékk, fara á marga eftirlitsstaði og það hefur verið brugðist við athugasemdum á ýmsum stöðum, líka í því fyrirkomulagi sem var þingmannanefndin, sem var minnst á hérna og starfaði stutt, tveir fundir eða eitthvað svoleiðis sem sú nefnd fékk, það var ekkert voðalega mikið, mun minna en ég bjóst við. En ég sé breytingar í frumvarpinu vegna athugasemda sem komu fram þar. Það er því búið að fara yfir þetta á mörgum stöðum í langan tíma og frumvarpið eins og það lítur út í dag ætti að geta fengið tiltölulega góða afgreiðslu innan þingsins án þess að skjót meðferð myndi þýða slæma eða lélega meðferð þingsins á málinu þar sem það var búið að fara í gegnum mjög langt ferli áður en það kom hingað inn. Ég hef ekki of miklar áhyggjur af því. Við gætum jafnvel klárað þetta mál í lok mars eða um það leyti. Ef það koma engar sérstakar eða mjög alvarlegar athugasemdir fram í umsögnum þá hef ég ekki miklar áhyggjur af gæðum frumvarpsins í heild sinni hvað þessi atriði varðar. Ég myndi telja það litla áhættu sem slíka þótt þingið myndi afgreiða jafn stórt frumvarp og þetta er á tiltölulega stuttum tíma þótt ég mæli að sjálfsögðu ekki með neinni flýtimeðferð. En að undanskildum þeim breytingartillögum sem hér eru lagðar fram myndi ég endilega vilja fá þetta frumvarp samþykkt tímanlega fyrir kosningar þannig að það myndi nýtast strax á næsta ári.