151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

kosningalög.

339. mál
[22:54]
Horfa

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég vil þakka þeim þingmönnum sem hér hafa tekið þátt á síðkvöldi í umræðu um þetta mál, bæði með andsvörum og ræðum. Ég vil fyrst koma inn á nokkur atriði sem hér hefur borið á góma varðandi hlutverk og stöðu landskjörstjórnar og stjórnskipulega stöðu hennar sem að sjálfsögðu má ræða um. En þá minni ég á það, sem kom fram í framsöguræðu minni, að í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir því að sú stjórnsýsla falli bæði undir stjórnsýslulög og upplýsingalög, sem ekki hefur gilt að öllu leyti gagnvart kosningum fram að þessu. Alþingi kýs áfram meiri hluta, að vísu bara meiri hlutann núna í landskjörstjórn. Það er að sjálfsögðu atriði sem menn geta hugleitt en það liggur í eðli máls vegna sameiningarinnar í ein lög að t.d. samtök sveitarfélaga í landinu komi að borðinu líka. Hugsunin með að hafa fræðasamfélagið með er tengingin við fræðin og rannsóknir og annað því um líkt.

Að sjálfsögðu þarf að búa vel að landskjörstjórn. Ein möguleg lending þess máls, sem ég átti kannski alveg eins von á að yrði raunin, var að landskjörstjórn fengi sjálfstæða stöðu þannig að hún starfaði í skjóli Alþingis. Það hefði að mínu mati alveg komið til greina sem frágangur á því máli. En niðurstaðan var að horfa til hennar sem sjálfstæðrar stjórnsýslunefndar á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins. Ég skil vel að menn staldri við það að yfirkjörstjórnir kjördæmanna hverfi af heimi og ég get alveg viðurkennt það sjálfur, þegar ég hugsa um venjulega kosninganótt, að maður myndi sakna þess að heyra ýmsa formenn yfirkjörstjórna koma og lýsa úrslitunum í sínum kjördæmum, hver með sínu lagi eins og gengur. En á hinn bóginn má segja að auðvitað sé það til talsverðrar einföldunar að sex slík batterí, kosin af Alþingi, og það sem þau þurfa að hafa í kringum sig til að geta sinnt sínu hlutverki, hverfi og þeir sem tala fyrir einföldun regluverks og að minnka báknið líta kannski aðeins á þetta sem þátt í því.

En svo gamni sé nú sleppt þá geri ég ekki lítið úr því sjónarmiði, og ég velti fyrir mér í því sambandi leiðbeiningum landskjörstjórnar niður eftir keðjunni. Það er alveg ljóst að það er mikilvægt að ábyrgur aðili geti leiðbeint og veitt ráðgjöf og reynt að tryggja samræmi á öllum stigum kosningaframkvæmdarinnar. Og hvar byrjar kosningaframkvæmdin? Jú, hún byrjar hjá kjörstjórnum sveitarfélaganna. Kjörstjórnir sveitarfélaganna eru grunneiningin í öllum almennum kosningum. Þær eru það þá og verða það óháð því hvort til er yfirstjórn kjördæmis eða ekki. Þær eru t.d. einar á vellinum þegar kosið er til sveitarstjórna. Þá sæi maður fyrir sér að landskjörstjórn myndi leggja sérstaka rækt við það að leiðbeina þeim og tryggja samræmi þeirra. Menn kunna að hafa áhyggjur í því sambandi af kjörstjórnum í fámennum sveitarfélögum sem ekki væru kannski miklir burðir til að aðstoða með og búa góðar starfsaðstæður. En þar sem ég þekki til, og það er m.a. í mjög litlum sveitarfélögum, er það gert af mikilli samviskusemi og menn vanda sig ákaflega mikið við það og fá yfirleitt hæstu kosningaþátttöku alls staðar því allir rólfærir menn sem eru á kjörskrá í viðkomandi litlu sveitarfélagi eru búnir að kjósa klukkan fjögur. Þannig er það nú bara mjög víða. Þegar slíkt kemur upp í stóru sveitarfélögunum þá held ég að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því, þau búa mjög myndarlega að sínum kjörstjórnum og í tilviki Reykjavíkur er þetta auðvitað í sjálfu sér eitt og hið sama nema kjördæmin eru tvö. En þetta er að sjálfsögðu atriði sem menn geta skoðað. Ég legg þá aðallega áherslu á það, án þess að ég ætli að segja stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir verkum, að vilji menn skoða þann möguleika að yfirkjörstjórnir kjördæmanna verði til staðar áfram með hlutverk, og það hlutverk verður þá væntanlega ekki síst að talningin fari þar fram í alþingiskosningum áfram, gott og vel, þá þarf að skilgreina samt vel hlutverk þeirra og stöðu í nýja fyrirkomulaginu því þær hafa þá ekki hlutverki að gegna í sveitarstjórnarkosningum o.s.frv.

Varðandi það að úrslitin birtist í einstökum sveitarfélögum, sem ég veit að eru mismunandi sjónarmið uppi gagnvart, þá er hér farin sú millileið að setja lágmarksíbúafjölda. Menn geta auðvitað rætt hvort hann eigi að vera hærri en ég bendi á að í nágrannalöndum okkar, ég hygg bara eiginlega öllum, er talið á kjörstað alveg niður í tíu atkvæði eða eitthvað svoleiðis. Ég fylgist gjarnan með kosningum annars staðar á Norðurlöndunum og þar er gaman að sjá pínulítil sveitarfélög eða pínulitla kjörstaði detta inn með 10–15 atkvæði. Það er auðvitað þannig í dag að í stærri sveitarfélögum landsins bjóða flokkarnir gjarnan fram pólitískt sína eigin lista og þar af leiðandi vita menn nokkuð fylgið hjá þeim. Þannig að þetta snýst ekki um það, held ég, að það geti verið rök fyrir því að flokka sveitarfélögin í landinu með mismunandi hætti af þessum ástæðum, að í þeim minni megi ekki sjást hvernig styrkleikahlutföll framboða liggja, en þau geri það beint og óbeint í hinum stærri vegna þess að þar er meira um pólitísk framboð. Það er frekar spurningin um kosningaleyndina, og að fara ekki of neðarlega gagnvart því að þetta sé orðið svo lítið samfélag og svo fá atkvæði að það sé auðvelt fyrir kunnuga að telja það algerlega út. Þar held ég að nefndin hafi í sjálfu sér fundið ágætisviðmiðun, að hafa þá einhverja lágmarksíbúatölu, sem reyndar verður óþörf ef svo fram heldur með áform um sameiningu sveitarfélaga þar sem lágmarksíbúafjöldi á að verða eftir tvennar kosningar eða svo 1.000 manns en við sjáum til hvernig fer með það.

Varðandi það sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kom inn á þá þótti mér gott að heyra að hann teldi frumvarpið, ef ég tók rétt eftir, eiginlega 99% gott, það er ágætisútkoma. Ég er alveg sannfærður um að á þeim atriðum sem hann nefndi — og voru auðvitað svo sem komin svolítið upp á borðið þá þegar og vitað var að menn myndu vilja skoða, eins og þetta með 16 ára kosningaréttinn hjá þeim sem búsettir eru erlendis og mögulega framlengingu á því — vefjist ekki fyrir mönnum að reyna að finna lausn og ná saman um það og ýmis önnur slík atriði. Hv. þingmaður tók þannig til orða að ef þau atriði hefðu verið lagfærð í frumvarpinu þá hefðu Píratar verið tilbúnir til að standa að flutningi þess og það vissi ég svo sem eftir samtöl. Þá ætla ég bara að segja það alveg eins og er, þannig að ekkert sé verið að fara í kringum það, að ég átti samtöl við ýmsa úr þingflokkunum og síðan við formenn flokkanna og þar voru ýmsir fyrirvarar gerðir og þar voru spurningar af svipuðum toga, ef þetta væri nú kannski lagfært þá litist viðkomandi betur á að standa að flutningi málsins o.s.frv. Eftir að það hafði verið rætt nokkuð fór málið eiginlega inn á það spor að það væri einfaldara að ég legði frumvarpið fram einn fyrir hönd þeirrar vinnu sem Alþingi hefur lagt af mörkum og að þingið sjálft, þingnefndin, tækist á við að skoða þá fyrirvara og þær athugasemdir sem væru af ýmsum toga hjá mismunandi aðilum og það hefði orðið ansi flókið og seinlegt, held ég, að fara algerlega nýja umferð í vinnu við málið til að reyna að ná því öllu saman til þess að síðan gæti ég kannski flutt málið með formönnum allra flokka. Ég vil þó taka fram, og það á ekki að vera neitt leyndarmál, að meiri hluti formanna flokkanna var tilbúinn til að standa að flutningi málsins. En það voru efnislegir fyrirvarar sem eru fullkomlega skiljanlegir og aðstæður sem gerðu það að verkum að þessi leið var valin, að ég held í ágætri sátt, að ég myndi flytja málið, gera grein fyrir því eftir því sem ég gæti, eftir því sem ég vissi af slíkum efnislegum fyrirvörum eða flöggum sem reist höfðu verið, og vísa því svo bara áfram til þingnefndarinnar að skoða það.

Varðandi póstkosningu, örstutt að lokum, þá hefði það mikla kosti, held ég, ef menn teldu að við værum að ná vel utan um það að tryggja slíka framkvæmd, „eftir því sem best verði á kosið,“ vegna þess að það er alveg ljóst, við þekkjum það, að Íslendingar eru ótrúlega duglegir, þó ekki fjölmennari þjóð en raun ber vitni, að vera hreinlega úti um allan heiminn og á ólíklegustu stöðum þar sem oft á tíðum er gríðarlega langt í næsta ræðismann, hvað þá sendiráð, og menn þurfa að hafa mjög mikið fyrir því ef þeir ætla að nýta kosningarrétt sinn. Niðurstaðan er því miður sennilega oftast að menn gefast upp einfaldlega við það, hafa ekki fyrir því. Svo má spyrja: Er einhver grundvallarmunur á slíkri póstkosningu og því að menn kjósi utan kjörstaðar, að vísu með kjörgögnum sem þeir hafa þá náð sér í kannski hjá ræðismanni og séu svo með atkvæði sitt sjálfir og þurfi sjálfir að koma því heim? Það er þá ekki mikill munur á því ef menn senda hvort heldur væri með pósti og ef hægt er að finna þannig leiðir sem m.a. tæknin getur boðið upp á, að menn geti prentað út algerlega lýtalaus kjörgögn til að kjósa utan kjörstaðar hjá sjálfum sér og fyllt út í tveimur, þremur umslögum, einu sendingarumslagi og öðru með nafni sínu og kennitölu og öllu slíku og svo því þriðja ómerktu og sendi það í póst eins og þeir myndu senda hið formlega gamaldags utankjörstaðaatkvæði sitt þá er ég ekki viss um að menn sjái að á þessu sé svo mikill munur þegar þeir fara að hugsa sig svona í gegnum þetta. En hagræðið væri algerlega ótvírætt. Ef menn teldu að þetta yrðu að vera prentuð kjörgögn heiman frá þá væri hægt að biðja um að þau væru send í pósti og svo væru þau send til baka. En ég tel að það sé spennandi kostur til að skoða en að sjálfsögðu ekkert úrslitaatriði heldur bara viðbótarviðleitni til þess, eins og hér var reyndar réttilega bent á, að reyna að gera öllum sem mögulegt er eins auðvelt að nýta þennan helga rétt sinn og kostur er, kosningarréttinn.

Ég verð svo bara að segja að frumvarpið byggist á vandaðri vinnu eins og ég held að það og mjög rækileg greinargerð þess beri með sér. Það er mikilvægt, já, að vinna þingsins verði sömuleiðis vönduð og þetta verði skoðað vel. Það á ekki að flýta sér neitt um of í þeim efnum. En hitt væri auðvitað mjög spennandi og mjög gaman ef menn sæju fram á möguleikana á því að lögfesta það þannig að þetta gæti hlotið prufukeyrslu í alþingiskosningunum næsta haust. Eins og ég sagði áður og minni á þá veit ég að sveitarfélögin hafa fyrir sitt leyti mikinn áhuga á að þetta geti orðið. Það mun að vísu ekki hafa mikil áhrif á undirritaðan hvort kosið verður til Alþingis næsta haust, ekki hvað þingsæti varðar, samkvæmt gömlum eða nýjum kosningalögum. En ég er áhugasamur um þetta mál og legg á það mikla áherslu að mér er nokkuð annt um það, af því ég þekki svo vel til þess, herra forseti, að sú gríðarlega mikla og góða vinna sem lögð hefur verið í þetta mál nýtist, að hún skili okkur að lokum nýrri og góðri heildstæðri kosningalöggjöf. Alþingi hefur lagt verulega mikið af mörkum, lagt til starfsmenn á bak við nefndirnar gegnum tíðina og tekið á sig kostnað og án þess að sjá það eftir sér og það er nú kannski ekki á hverjum degi sem það er Alþingi en ekki framkvæmdarvaldið sem hefur veg og vanda af vinnu af þessu tagi þannig að auðvitað hef ég metnað fyrir hönd Alþingis Íslendinga til þess að hér fáist góð niðurstaða.

(Forseti (BN): Það er nú þekkt að menn hætti við að hætta.)