tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín á fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Skattinum, Alþýðusambandi Íslands, BSRB, Nasdaq Iceland, Reykjavíkurborg og Samtökum fjármálafyrirtækja. Nefndinni bárust einnig umsagnir frá sömu aðilum auk Samtaka atvinnulífsins.
Þegar fjármagnstekjuskattur var hækkaður úr 20% í 22% á árinu 2018 var frítekjumarkið hækkað í 150.000 kr. Í þessu frumvarpi er lagt til að stofn fjármagnstekna sem falla undir frítekjumark verði breikkaður um leið og frítekjumarkið verði hækkað í 300.000 kr. Þannig nær frítekjumarki einnig til úthlutaðs arðs og söluhagnaðar hlutabréfa í hlutafélögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði eða á markaðstorgi fjármálagerninga. Eftir sem áður, og mikilvægt að það komi fram, verður arður og söluhagnaður hlutabréfa í óskráðum félögum að fullu skattlagður.
Áður en frítekjumark var tekið upp á árinu 2010 greiddu einstaklingar fjármagnstekjuskatt af verðbótum þannig að verðbólgan sem slík var skattlögð að fullu. Tilgangurinn með frítekjumarkinu er að verja einstaklinga fyrir slíkri skattlagningu, enda telst hún í eðli sínu mjög ósanngjörn, auk þess að auka skattalegan hvata til fjárfestingar og sparnaðar. Fram kom í umsögn Nasdaq Iceland að samþykkt frumvarpsins geti skipt sköpum fyrir aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja til að afla fjármagns við endurreisn atvinnulífsins að veirufaraldri loknum.
Athygli nefndarmanna var vakin á því að fjármagnstekjur sveitarfélaga eru að meginhluta vaxtatekjur af útsvarstekjum og öðrum skatttekjum en þau séu ekki undanþegin fjármagnstekjuskatti þrátt fyrir að meginverkefni þeirra séu lögbundin. Þá hafi sveitarfélög fjármagnstekjur af lánum til eigin félaga. Telja sveitarfélög að greiðsla fjármagnstekjuskatts vegna lánveitinga til eigin félaga girði fyrir möguleika þeirra til að sækja lánsfé á hagstæðum kjörum og lána það fé áfram á sömu kjörum til eigin félaga sem sinna lögbundnu hlutverki.
Lagt er til í frumvarpinu að um söluhagnað af frístundahúsnæði gildi sömu reglur og gilda um söluhagnað íbúðarhúsnæðis, þó þannig að eignarhald hafi varað í fimm ár að lágmarki. Ábendingar komu fram um að almennt ættu við önnur sjónarmið um frístundahús en íbúðarhúsnæði og hafa verði í huga þann eðlismun þegar til stendur að láta sömu reglur gilda um meðferð söluhagnaðar beggja tegunda eigna. Það sé því ekki hægt að gera kröfu um að frístundahúsnæði hafi verið nýtt til íbúðar eiganda með tilheyrandi lögheimilisskráningu við mat á því hvort um eigin not eigenda hafi verið að ræða. Því þurfi að gera þann fyrirvara að frístundahúsnæði hafi einungis verið nýtt af eigendum en ekki verið til útleigu gegn endurgjaldi.
Á það var einnig bent að fella yrði eignarhald undir stærðarmörk 17. gr. laga um tekjuskatt þannig að eignarhald á íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði sé lagt að jöfnu hvað söluhagnað varðar. Enn fremur var bent á að frístundahúsnæði skipti tíðar um eigendur nú til dags og algengara sé orðið slíkt húsnæði sé boðið út til leigu í hagnaðarskyni. Ætla megi að tilgangi verði náð án þess að skapa almennt skattahagræði af kaupum og sölum frístundahúsa með því að lengja þann tíma sem eignarhaldið þarf að hafa varað.
Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og telur ástæðu til að skýra orðalag ákvæðisins, þ.e. 1. gr., að því er varðar eigin not frístundahúsnæðis og gerir því tvíþætta tillögu um breytingu á efni þess. Annars vegar að stærðarmörk 1. mgr. 17. gr. laga um tekjuskatt gildi jafnframt um sölu frístundahúsnæðis og hins vegar verði lágmarkseignarhaldstími lengdur um tvö ár, úr fimm árum í sjö ár. Niðurstaðan verður sú að hagnaður af sölu frístundahúsnæðis telst því ekki til skattskyldra tekna sé húsnæði innan tiltekinna stærðarmarka og að það verið nýtt af eigendum en ekki til útleigu gegn endurgjaldi, enda hafi eignarhaldið staðið að lágmarki í sjö ár samfleytt.
Meiri hluti nefndarinnar áréttar að við sölu íbúðarhúsnæðis eiga stærðarmörk 2. málsliðar 1. mgr. 17. gr. laganna ekki við þegar hið selda íbúðarhúsnæði hefur verið til eigin nota seljanda. Þegar svo ber undir kemur því ekki til skoðunar hvort heildarrúmmál hins selda fari fram úr mörkum ákvæðisins við mat á því hvort skattleggja beri söluhagnað af íbúðarhúsnæði. Samkvæmt 1. gr. frumvarpsins, eins og lagt er til að henni verði breytt, verður frístundahúsnæði bæði að hafa verið til eigin nota og vera innan nefndra stærðarmarka til þess að hagnaður af sölu þess teljist ekki skattskyldur. Það gildir því raunverulega annað um frístundahúsnæði en íbúðarhúsnæði sem viðkomandi á lögheimili á og býr í. Við mat á því hvort frístundahúsnæði sé innan stærðarmarka 1. mgr. 17. gr. laganna skal miðað við samanlagt heildarrúmmál hins selda frístundahúsnæðis og annars íbúðarhúsnæðis seljanda á söludegi. Hið gagnstæða gildir við mat á því hvort íbúðarhúsnæði sé innan stærðarmarka 1. mgr. 17. gr. laganna og hvort hagnaður af sölu þess teljist til skattskyldra tekna. Samkvæmt orðanna hljóðan í 2. málslið 1. mgr. 17. gr. laganna skal miða við „heildarrúmmál íbúðarhúsnæðis“ seljanda við könnun á því hvort farið er fram úr stærðarmörkum og söluhagnaður skattlagður. Frístundahúsnæði telst ekki til íbúðarhúsnæðis og þar af leiðandi er heildarrúmmál þess ekki inni í samtölu stærðarmarka 1. mgr. 17. gr. laganna við sölu á íbúðarhúsnæði.
Þá komu fram sjónarmið um að ástæða væri til að hækka stærðarmörk 1. mgr. 17. gr. til samræmis við meðalrúmmál frístundahúsa á Íslandi. Meiri hlutinn hefur skilning á þeim sjónarmiðum og telur rétt að þau komi til skoðunar í framhaldi af gildistöku ákvæðisins, verði frumvarpið að lögum. Jafnframt telur meiri hlutinn ástæðu til að fram fari heildræn endurskoðun á margnefndri rúmmálsreglu 1. mgr. 17. gr. laganna. Reglan er að stofni til frá árinu 1972 og full ástæða til þess að endurmeta hvort heildarrúmmál íbúðarhúsnæðis sé hið rétta viðmið við mat á því hvort skattleggja skuli söluhagnað tiltekinna fasteigna.
Varðandi 2. gr. frumvarpsins um fjármagnstekjuskatt vegna gengishagnaðar telur nefndin nauðsynlegt að koma til móts við þá einstaklinga sem sjá fram á ákveðin útgjöld í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu og fjárfesta því í erlendum gjaldeyri til að verjast gengisbreytingum. Þetta á ekki síst við um íslenska námsmenn sem stunda nám í öðrum löndum. Við umfjöllun meiri hlutans komu fram ábendingar um að framkvæmd frádráttarheimildar á móti innleystum gengishagnaði af sérgreindum sparnaðarreikningum gæti orðið flókin og matskennd. Með hliðsjón af því leggur meiri hlutinn til að 2. gr. frumvarpsins falli brott og beinir því til ráðuneytisins að vinna nánar að útfærslu framkvæmdarinnar í samráði við Skattinn og Samtök fjármálafyrirtækja. Við útfærsluna kann einnig að vera nauðsynlegt að líta til almenns frítekjumarks fjármagnstekna.
Í 5. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur þess efnis að innleystur gengishagnaður af sérgreindum sparnaðarreikningum verði undanþeginn staðgreiðsluskyldu í samræmi við fyrirhugaða breytingu 2. gr. frumvarpsins á lögum um tekjuskatt. Eðli málsins samkvæmt leggur meiri hlutinn til að 5. gr. frumvarpsins falli brott samhliða brottfalli 2. gr. Þar af leiðandi standa aðeins eftir frumvarpsgreinar um breytingu á lögum um tekjuskatt og er því lögð til breyting á fyrirsögn frumvarpsins því til samræmis.
Aðrar breytingar eru orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif og þarfnast ekki frekari skýringa.
Að því virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem tilgreindar eru hér í nefndaráliti meiri hlutans.
Undir nefndarálitið rita Óli Björn Kárason, formaður, Brynjar Níelsson, Jón Steindór Valdimarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Willum Þór Þórsson.