151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[12:14]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir greinargóða framsöguræðu fyrir þessu máli sem í flestu tilliti er mjög þarft mál. Það er ekki vonum seinna að þetta mál sé lagt fram nú þegar kjörtímabilið er næstum því á enda runnið. Mér er minnisstætt að þegar þessi hækkun á hlutfalli fjármagnstekjuskatts úr 20 í 22% var samþykkt í desember 2017 — ég treysti mér nú ekki til að samþykkja þá hækkun — var boðuð endurskoðun á skattstofni fjármagnstekjuskatts. Ég vildi gjarnan leyfa mér að spyrja hv. framsögumann hvort hann hafi einhverjar skýringar á því af hverju þetta mál er ekki komið fram fyrr. Auðvitað svarar hann ekki fyrir hæstv. fjármálaráðherra en hann kynni þó vita um ástæður þess að það er ekki fyrr en á þessu ári sem er skipuð nefnd til að fara yfir málið. Það frumvarp sem núna liggur fyrir er afrakstur af því starfi, eins og fram kemur í frumvarpinu. Ég hef fleiri spurningar fyrir hv. þingmann og ég fæ þá að koma að þeim í seinna andsvari.