151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[12:19]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann nefnir hér venjulegt fólk, bara vinnandi fólk. Það er nú einu sinni þannig að venjulegt fólk öðlast ekki fjármagnstekjur nema það hafi lagt til hliðar af launatekjum sem það er búið að borga skatta af. Þess vegna er sú krafa fráleit sem höfð er uppi af sumum, sem kannski telja sig hafa allt sem heitir réttlæti og sanngirni einhvern veginn frátekið fyrir sig og þeir séu hinir einu og sönnu talsmenn þess, að það eigi að skattleggja allar tekjur jafnt. Allar tekjur eru nefnilega ekki jafnar, þær eru misjafnlega til komnar. Þegar við erum að tala um fjármagnstekjur og bara venjulegt fólk, venjulegt vinnandi fólk, þá verða ekki til fjármagnstekjur nema áður hafi verið greiddur skattur af launatekjunum sem mynduðu þessar fjármagnstekjur.

Ég hafði nú hugsað mér að koma hér í ræðu um það stóra réttlætismál sem í raun og veru er tekið á í þessu frumvarpi sömuleiðis sem er skattlagning frístundahúsa, eins og það heitir á lagamáli en heitir í máli venjulegs fólks sumarhús. Ég vildi spyrja hv. þingmann um skýringar á því af hverju hv. nefnd gerir tillögu um breytingu í því efni, um fimm ára eignarhaldstíma í sjö. Það er ákaflega hnýsilegt viðfangsefni, verð ég að leyfa mér að segja, að leitast við að öðlast skilning á því hvaða djúpu rök kunna að liggja að baki þessari viðmiðun, hækkun um þessi tvö ár, og hvaða fræðilegu hugleiðingar eða niðurstöður liggja þar að baki.