tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .
Það er nú þannig, hv. þingmaður, að orðið sumarhús á ekki mikið við lengur. Fólk er í þessum húsum meira eða minna allt árið. Djúpa pælingin á bak við breytingar á árafjöldanum er auðvitað sú að það eru mismunandi sjónarmið um þetta. Menn hafa haft áhyggjur af því að sumir séu raunverulega bara að byggja og selja í hagnaðarskyni eða kaupa og selja í hagnaðarskyni. Það er ekki verið að hugsa þetta sem eitthvert skattahagræði fyrir það fólk heldur bara fyrir venjulegt fólk sem á svona bústað til eigin nota en notar hann ekki í atvinnuskyni eða hagnaðarskyni. Sjö ár er málamiðlun, hluti af nefndarmönnum vildi fara hærra. Sjálfur benti ég á að það er mjög algengt að fólk kaupi þessar eignir á efri árum og er kannski ekki búið að eiga þær neitt mjög lengi þegar það fer á eftirlaun. En sjö ár eru þekkt fyrirbæri í tekjuskattslögum og viðmiðunum þannig að fallist var á að hækka þetta í sjö ár. Hugsunin er bara sú að tryggja enn betur að þetta sé raunverulega eign til eigin nota en ekki í atvinnuskyni eða hagnaðarskyni. Það er ekki flóknara en það.