tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .
Virðulegur forseti. Ég vil lýsa almennri ánægju með þetta mál. Eins og hér hefur komið fram í umræðunni var árið 2017 ákveðin hækkun á álagningarhlutfalli fjármagnstekjuskatts úr 20 í 22%, sem var ekki vel rökstudd aðgerð en henni fylgdi yfirlýsing um að skattstofn fjármagnstekjuskatts yrði tekinn til endurskoðunar. Það hefur nú loksins verið gert þremur árum síðar. Auðvitað má alltaf deila um útfærslur en þarna sýnist hafa verið farin leið sem er til þess fallin að komast hjá óþarfa skriffinnsku og kostnaði.
Ég vildi sérstaklega gera að umræðuefni skattlagningu á því sem kallað er söluhagnaður við sölu frístundahúsa eða sumarbústaða. Þetta hefur verið baráttumál Landssambands sumarhúsaeigenda um mjög langt skeið og núna loksins hillir undir að þetta mál verði leitt til lykta.
Herra forseti. Á umliðnum árum hefur sumarbústaðaeign orðið almenn hér á Íslandi og þúsundir manna hafa reist eða keypt sumarbústaði. Þetta er almennt gert í því skyni að dvelja á friðsælum stað í næði frá amstri dagsins en ekki með söluhagnað fyrir augum. Almennt er litið á slíka eign sem sjálfsagða framlengingu á íbúðareign þegar efni vænkast. Algengt er að einstaklingur fari í gegnum tvenn til þrenn íbúðarkaup og -sölur um ævina en kaupi sér aðeins einu sinni sumarbústað til að eiga til æviloka. Enda þótt tilgangur kaupa hjá öllum þorra manna sé ekki að hafa fjárhagslegan ávinning af eigninni með því að selja sumarbústað getur komið til þess að fólk telji nauðsynlegt að selja sumarhúsið, en þá rekst fólk á að um skattlagningu söluhagnaðar sumarbústaða gilda aðrar reglur en þær sem gilda um söluhagnað af íbúðarhúsnæði. Samkvæmt gildandi lögum er hagnaður sem myndast við sölu á frístundahúsi skattskyldur án tillits til þess hversu lengi bústaðurinn hefur verið í eigu hlutaðeigandi einstaklings. Það er þess vegna nauðsynlegt að þessar reglur verði samræmdar þannig að ákvæði um skattlagningu hagnaðar af sölu íbúðarhúsnæðis taki einnig til frístundahúsa.
Er á það að líta, herra forseti, að á eignarhaldstímanum, sem getur auðvitað spannað misjafnlega langan tíma, í sumum tilfellum langan tíma, hafa farið fram margvíslegar endurbætur og viðbætur sem ekki eru tíundaðar á skattframtali árlega, enda bústaðurinn skráður samkvæmt fasteignamati. Hér er um að ræða hvers konar endurbætur og viðhald, m.a. inntökugjöld rafmagns eða heits vatns, þeim kostnaði sem því fylgir með fjárfestingum í ofnum, lögnum og jafnvel heitum potti fyrir utan bústaðinn, við ræktun lands, trjárækt eða hverjar aðrar endurnýjanir á húsinu svo að hér séu nefnd nokkur dæmi. Kostnaður við slíkar framkvæmdir getur vitaskuld náð verulegum fjárhæðum og haft áhrif á endursöluverð bústaða þannig að þessi fjárfesting fæst endurgreidd í hærra söluverði. Þetta gerist án þess að skattlagður hagnaður sé lækkaður að sama skapi.
Það verður ekki gerð sú krafa til almennra borgara að slíkum kostnaði sé haldið til haga enda yfirleitt ekki til hans stofnað vegna mögulegra eigendaskipta í framtíðinni og ekki hugað að mögulegum áhrifum á endursöluverð, komi til þess að húsið verði selt. Eigendaskipti á sumarhúsum verða iðulega vegna breytinga á aðstæðum fjölskyldna, vegna aldurs, hjónaskilnaðar eða andláts en þá er erfingjum gert að greiða erfðafjárskatt af bústaðnum og síðan tekjuskatt af söluhagnaði þegar bústaðurinn er seldur, t.d. í framhaldi af búskiptum. Getur þá reynst erfitt að reikna út kostnaðarverð framkvæmda sem aukið geta verðmæti hússins þar sem arfláti er látinn.
Það er rétt að ljúka þessari stuttu yfirferð með því að nefna að hér er á ferð réttlætismál sem felur í sér að sömu reglur gildi um skattlagningu hagnaðar af sölu frístundahúsa í eigu einstaklinga og gilda um íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga eða dánarbúa. Það má benda á að þegar gerð var breyting á lögum um virðisaukaskatt, um endurgreiðslu 100% virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði, fylgdi heimild til endurgreiðslu hans af vinnu við frístundahús. Að sama skapi, þegar gerð var breyting á lögum um tekjuskatt, náði heimildin einnig til vinnu við frístundahús.
Herra forseti. Það liggja því fyrir skýr fordæmi af hálfu löggjafans um að samræmi ríki við skattlagningu vegna íbúðar- og frístundahúsnæðis. Ég mun styðja þetta mál.