151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

beiðni um umræðu um sóttvarnaaðgerðir.

[15:02]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegi forseti. Það er þetta með sóttvarnaaðgerðirnar. Nú er í gildi reglugerð hæstv. heilbrigðisráðherra sem hefur þann lengsta gildistíma sem við höfum fengið að kynnast í þessum faraldri. Ég vildi gjarnan beina því til forseta að hann myndi finna tíma í dagskrá þingsins til að taka til umræðu sóttvarnaaðgerðirnar, þær sem eru í gildi núna. Það er líka fullt tilefni að mínu mati til þess að ræða framvindu bólusetningar. Mér fyndist ótækt að þingið færi í jólafrí og að í mánuð fengju þingmenn ekki tækifæri til að ræða þessi mál. Þannig að ég vildi beina því vinsamlegast til virðulegs forseta að hann fyndi þessu stað í dagskrá þingsins á næstu dögum og beini þeirri ósk honum til þóknanlegrar meðferðar.