151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.

336. mál
[15:08]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Eins og ég fór yfir í umræðunni í gær er hér um að ræða mikilvægt jafnréttismál, jafnrétti til búsetu. Þetta mál snýst í raun um að jafna möguleika fólks til þess að búa og starfa um land allt í hinum dreifðu byggðum jafnt sem í þéttbýlinu. Þetta er mál sem snýst um jöfnuð. Þingflokkur Samfylkingarinnar styður að sjálfsögðu þetta mikilvæga jafnréttismál og meginmarkmið málsins. En ég vil ítreka þá staðreynd að þetta er meingallaða kerfi sem við erum að vinna hér með og það hefur verið þekkt lengi. Það er algjört lykilatriði, og ég ítreka áskorun mína til hæstv. iðnaðarráðherra að koma með raunverulegar tillögur til breytinga og það strax í vor. Þetta mál er búið að þvælast lengi í kerfinu og það er löngu kominn tími til að taka málið upp og ljúka því í eitt skipti fyrir öll.