151. löggjafarþing — 39. fundur, 16. des. 2020.
jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
14. mál
Virðulegur forseti. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ekki þá fortakslausu reglu að greiða atkvæði gegn málum stjórnarinnar heldur förum við eftir inntaki málanna. Við styðjum þessi tvö mál sem hér eru lögð fram. Hér er verið að styrkja og efla stjórnsýslu á sviði jafnréttismála og þetta er vel unnið mál. Vel var að verki staðið innan nefndarinnar og því styðjum við þetta mál.