tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .
Herra forseti. Meðal þeirra breytinga sem við erum að gera núna eru breytingar sem eru í samræmi við niðurstöðu nefndar á vegum fjármálaráðuneytisins sem fór yfir stofn fjármagnstekjuskatts. Inni í þeim tillögum var m.a. að taka á þeim vanda sem hefur verið, að söluhagnaður af sumarhúsum hefur skert lífeyristekjur og almannatryggingatekjur eldri borgara. Það er hins vegar skýrt í þeirri breytingu og í tillögu nefndarinnar eftir þessa breytingu að sumarhús eins og aðrar eignir eldra fólks, eða alls fólks skulum við segja, halda áfram að falla undir 1.200 m³ viðmiðið sem áður var inni. Þetta eru jákvæðar breytingar fyrir þá sem eru að selja sumarhúsin sín á efri árum og þurfa þá ekki að sæta tekjufalli vegna þeirra og aukinheldur er tímabilið sem menn þurfa að hafa átt húsið lengt úr fimm árum í sjö.