151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[16:14]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Í sögulegri efnahagskreppu er ríkisstjórnin að veita eignafólki í landinu ýmiss konar umbun, m.a. að tvöfalda frítekjumark á fjármagnstekjur og undanþágur til arðs og söluhagnaðar af verði á hlutabréfum, á sama tíma og yfir 20.000 manns eru atvinnulausir og á sama tíma og ríkisstjórnin hefur ekki treyst sér til að hækka frítekjumark á launatekjur öryrkja og eldri borgara eða lengja tímabil atvinnuleysisbóta eða hækka grunnatvinnuleysisbætur; og á sama tíma þegar allar vísbendingar eru um að eignaójöfnuður sé að aukast. Þetta er kannski ekki skringileg forgangsröðun úr ranni Sjálfstæðisflokksins en þetta er svo sannarlega furðuleg forgangsröðun frá tveimur félagshyggjuflokkum og sérstaklega Vinstri grænum.