151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[16:19]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég er stoltur af þessu máli. Ég er stoltur af því að standa þannig að verki að verið sé að verja íslenskt launafólk, íslenskan almenning og ekki síst eldri borgara sem eiga sinn sparnað m.a. í skráðum hlutabréfum, vegna þess að frítekjumarkið nær eingöngu til skráðra hlutabréfa, ekki til einkahlutafélaga eða neins slíks, og á einhvern sparnað í banka. Það þarf og hefur þurft að greiða skatt af verðbólgu, verðbólguskatt, hv. þingmenn. Með þessu frumvarpi erum við að koma í veg fyrir að hér sé lagður verðbólguskattur á almenna sparendur á Íslandi, hvort heldur sem þeir eru með reikninga í bönkum eða eiga hlutabréf í skráðum hlutafélögum á skipulegum hlutabréfamarkaði, ekki í einkahlutafélögum. (Forseti hringir.) 300.000 kr. frítekjumark skiptir engu máli fyrir þá auðmenn (Forseti hringir.) sem hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson hefur hvað mestan áhuga á.