151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[16:21]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Í þeim gögnum sem við unnum með í hv. efnahags- og viðskiptanefnd kemur m.a. fram að hækkun á frítekjumarkinu veiti einungis tekjuhæstu 10% framteljenda vaxtatekna viðbótarskjól fyrir áhrifum verðbólgu. Það kemur fram í gögnunum sem við erum að vinna með.

Af hverju getur söluhagnaður af sumarbústöðum komið lífeyrisþegum illa? Það er út af skerðingarmörkum í almannatryggingakerfinu. Ef það á að breyta því og koma til móts við lífeyrisþega hvað þetta varðar er lausnin ekki að breyta fjármagnstekjuskattinum fyrir alla, sem gagnast helst ríkasta fólkinu í landinu. Þá breytum við lögum um almannatryggingar.