151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[16:22]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það var skemmtilegt að hv. þm. Óli Björn Kárason talaði um að hér væri verið að verja alþýðuna, verja launamenn. Ég beið eftir að hann nefndi öreigana. Komið hefur fram að þessi hækkun á mörkum nýtist einungis 10%. Ég hef ekki áhyggjur, hv. þm. Brynjar Níelsson, af því að þessi 1 milljarður setji ríkissjóð á hausinn. Við erum að tala um þá grundvallarumræðu hvort við ætlum að leyfa ójöfnuði að aukast í kreppu, hvort við ætlum að moka undir það fólk sem á eignir og þarf ekki á hjálp að halda og skilja eftir og gleyma þeim sem eiga varla til hnífs og skeiðar. Þess vegna kemur mér ekki á óvart að umræðan um þessa atkvæðagreiðslu sé fyrst og fremst á milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins en ekki hinna stjórnarflokkanna.