151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[16:40]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Haraldur Benediktsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um búvörulög þar sem við höfum til umfjöllunar breytingar á búvörulögum er varða frestun á útboði tollkvóta. Í nefndaráliti okkar rekjum við sjónarmið þeirra umsagnaraðila sem komu fyrir nefndina og reynum að gera því tæmandi skil hvaða viðhorf eru reifuð þar. Í nefndarálitinu er fjallað um þá stöðu á búvörumarkaði sem upp er komin vegna Covid og vegna þess ástands sem hefur skapast, að innanlandsmarkaður hefur skroppið saman, vegna birgðasöfnunar og vegna verri afkomu búvöruframleiðenda og þess vanda sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir. Það má með nokkrum rökum segja, virðulegur forseti, að sá vandi sé eldri en það ástand sem veiran skapaði en það er ekki meginefni frumvarpsins.

Við vekjum líka athygli á því að vegna þessa ástands, þegar lifandi birgðir safnast upp, gripir sem ekki komast í sláturhús, skapast annar vandi sem er nú miklu frekar dýravelferðarvandi, þ.e. að bændur losna ekki við gripi í sláturhús og dýr halda áfram að stækka og kýrnar halda áfram að bera og gylturnar að gjóta o.s.frv., sem ég þarf ekki að rekja nánar. En um allnokkurn tíma mun þetta verða vandi úr að leysa.

Það er eðlilega allmikil umræða um landbúnað og oft og tíðum mjög heit og tilfinningaþrungin, þegar verið er að fást við þessi inngrip sem eru t.d. um framboð og útboð á innflutningsheimildum og eðlilega vakna áhyggjur manna, og birtast vel í umsögn Neytendasamtakanna, af hækkuðu verði. Nú höfum við ekki í langan tíma haft þetta útboðsfyrirkomulag á tollkvótum og það var að sönnu ætlað til að koma betur fram þeim markmiðum sem undirrituð voru þegar tollasamningur var gerður í maí 2017 um að lækka verð til neytenda. Því er að mínu viti til að svara að um allnokkurn tíma verður offramboð, hvort sem það er þá vegna framleiðslu hér á landi eða úti í Evrópu, þannig að ótti minn við verulegar verðhækkanir vegna þessara aðgerða er kannski umdeilanlegur, að þær leiði sjálfkrafa til verðhækkunar.

Við vitum líka af almennum samkeppnislögum og við eyðum talsverðum krafti í það í nefndarálitinu að fjalla um samkeppnislög og samkeppnisumhverfi búvöruframleiðslu. Það er loksins, eftir langa mæðu, búið að greina lagaumhverfi samkeppnismála, bera saman íslenska löggjöf um landbúnaðarframleiðslu og framleiðslu í Noregi og innan Evrópusambandsins. Skýrslan sem Lagastofnun Háskóla Íslands gerði birtist fyrir nokkrum dögum á heimasíðu atvinnuvegaráðuneytisins. Þar er þessi samanburður mjög skýrt dreginn fram. Þar er mjög vel undirstrikað að við búum íslenskum landbúnaði ekki sambærilega samkeppnislöggjöf og aðrir bændur njóta. Það er einmitt verið að beita þeim samkeppnislögum sem gilda í Evrópusambandinu til að taka á vanda bænda í þeim löndum sem hafa þær heimildir, til að víkja þeim hreinlega til hliðar og heimila samruna, heimila samstarf og heimila mjög kröftug inngrip á markaði. Í þessari samkeppnisstöðu erum við.

Ég held að áherslan í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar sé sú að undinn verði bráður bugur að því að endurskoða samkeppnislöggjöfina því að oft hefur hún nú verið deiluefni hér á hinu háa Alþingi og ekki síður úti í samfélaginu. Við þurfum á einhvern hátt að leiða átök um þennan þátt í jörð þannig að við séum að bera saman sambærilega hluti.

Oft hafa átökin verið í kringum 71. gr. búvörulaga, sem er sérstök undanþága til sameiningar mjólkurvinnslufyrirtækja, og sú grein hefur verið gerð að sérstöku umtalsefni, að það sé ógagnsæ heimild sem mögulega skili ekki réttum ávinningi til bænda og neytenda. Ég held að tímabært sé að fara með skipulegum og ábyrgum hætti inn í þá lagabreytingu sem þarf til að koma fram eðlilegra samkeppnisumhverfi sem byggist á heimildum sem eru þá meira sérsniðnar um þessa atvinnugrein. Atvinnugreinin er sérstök að því leyti að hún hefur mjög langa framleiðsluferla og hefur þá sérstöðu að ákvarðanir sem teknar eru í dag eru kannski mörg ár að koma fram í breyttum áherslum eða breyttu háttalagi þeirra sem ráða ríkjum yfir búum sínum og yfir afurðastöðvum.

Virðulegi forseti. Ég fer kannski ekki dýpra inn í þetta atriði. Ég vil tína til einn þátt enn sem við nefnum í okkar nefndaráliti. Það snertir ekki síst utanríkisráðherra af því að það liggur fyrir að hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. landbúnaðarráðherra hafa hafið greiningu á þeim tollasamningi sem hefur verið mjög til umræðu á undanförnum árum og vilji stendur til að endurmeta hann og óska eftir viðræðum um hann. Það eru vissulega háværar kröfur um að honum verði einfaldlega vikið til hliðar. Menn eru að nefna 112. gr. EES-samningsins sér til stuðnings í þeim efnum. Því er til að svara að við ræddum talsvert 112. gr. og leituðum álits á notkun hennar. Í þessu tilfelli er það nú ekki þannig að með einföldum hætti sé hægt að beita henni sem slíkri. Tollasamningur, í þessu tilfelli um landbúnaðarvörur, þar sem landbúnaður er ekki hluti af EES-samningnum, er gerður á grundvelli 19. gr. EES-samnings og er þar af leiðandi sérsamningur í þessu tilfelli. En hvort sem um er að ræða sérsamning eða ekki þá hefur framkvæmd hans eðlilega áhrif á öll samskipti okkar við Evrópusambandið. Rétt eins og kemur fram í útflutningi sjávarafurða, og sjávarútvegur er ekki hluti af EES-samningi með beinum hætti, erum við ekki að mæla með slíkri leið í nefndaráliti okkar við hæstv. ráðherra.

Sú leið sem við völdum í starfsskilyrðum grænmetisframleiðslu á Íslandi, þar sem við felldum niður tolla og tókum upp beinar greiðslur, er annar skóli þeirra samninga sem við erum að nota. Hinn skólinn er sá að viðhalda tollvernd á innflutningsheimildum til þess að veita innlendri framleiðslu aðhald og auka fjölbreytni á markaði. Ég ætla bara að leyfa mér að segja á þessum drottins degi, í framsögu með þessu nefndaráliti, að mér finnst báðar þessar leiðir vera gjaldþrota. Mér finnst hugmyndafræði þessara beggja leiða vera komin á endastöð. Og hvers vegna segi ég það? Jú, ég segi þetta vegna þess að í báðum þessum skólum, eða báðum þessum útgáfum af samningum við bændur, eru íslenskir bændur ekki að sækja sér stækkandi markað, eða virðast ekki hafa stöðu til þess.

Að þessu samanlögðu þarf breytt samkeppnislagaumhverfi fyrir íslenskan landbúnað og nýja nálgun við þessa samninga, hvernig við ætlum að tryggja að hagsmunir bænda og hagsmunir neytenda séu settir hlið við hlið, hvernig við höldum á því að standa við bakið á atvinnugreininni með samningum sem við gerum. Það er samdóma álit allra sem sendu inn umsögn í þessu máli að stefnan eigi að miða að því að verja íslenskan landbúnað og efla íslenskan landbúnað. Það er kannski breyting sem orðið hefur í umræðu um landbúnað á Íslandi á síðustu átta eða níu árum, vil ég leyfa mér að segja, að það er enginn að deila um það lengur. Við erum fyrst og fremst að deila um leiðir.

Ég held að margir sem gagnrýna þessar leiðir hafi sitthvað til síns máls. Ég ætla ekki að halda að mín sé endilega miklu réttari en önnur. En við þurfum að feta út úr þessari umræðu leið sem mætir sjónarmiðum þeirra aðila sem láta sig þetta varða. Atvinnugreinin mun ekki lifa í heiftarlegum átökum um hvað sé rétt og hvað sé rangt. Við þurfum fyrst og fremst að vera sammála um hvaða leiðir séu færar.

Það er í sjálfu sér margt hægt að segja um landbúnað, og um þetta frumvarp sem er Covid-aðgerð. Ég ætla einungis að segja það, virðulegi forseti, að sú breytingartillaga sem nefndin lagði fram, um að lengja það tímabil sem þessi heimild nær til, er út fyrir þann ramma sem hægt væri að rökstyðja sem Covid. Ég ætla bara að segja það hér. Af hverju gerum við það? Við gerum það kannski líka til að draga fram að vandi landbúnaðarins hefur magnast á undanförnum árum. Hann er ekki síst til kominn vegna þess tollasamnings sem við gerðum og höfum verið að framkvæma hér frá 1. janúar 2018.

Ég ætla þá líka að leyfa mér að lýsa því yfir, virðulegi forseti, að ég vil að við tökum breytinguna aftur til baka til nefndarinnar og við tökum hana ekki til afgreiðslu við 2. umr. því að hana þarf eðlilega að undirbyggja betur en okkur tekst að gera í nefndarálitinu. Ég ætla bara að vera ærlegur með það og segja það með þessum hætti. En þá þýðir það að við verðum að taka stöðu landbúnaðarins miklu alvarlegar en við gerum. Við meinum það sem við segjum þegar við tökum undir álit Samkeppniseftirlitsins um samkeppnislöggjöfina. Við erum að meina það. Við þurfum miklu víðtækari vinnu til að takast á við það vandamál sem uppi er og þá erfiðleika sem mæta okkur á næstu árum. Ég skal algerlega segja það líka að ég tel ekki að búið verði að greiða úr þeim flækjum á þeim tíma sem frumvarpið gerir ráð fyrir að heimild þessi nái til, sem er til 1. janúar 2022. Það mun taka lengri tíma og þetta mun verða stærra vandamál. Í því samhengi að við þurfum að breyta hér samkeppnislöggjöfinni, við þurfum að breyta umgjörðinni í kringum búvörusamningana og ekki síst að komast að niðurstöðu um hvort við getum búið við þann tollasamning sem við höfum samið um — hæstv. utanríkisráðherra hefur haft í undirbúningi að hefja viðræður um hann og án þess að hann hafi lýst yfir að hann hafi óskað eftir formlegum viðræðum á ég frekar von á því að það verði gert — að við séum þá ekki að misstíga okkur í því að heimila þessa breytingu á lögunum til lengri tíma en þess sem Covid-röksemdin getur náði yfir. Við skulum bara alveg ræða um þetta með opnum huga, með þeim skýra huga að vanda landbúnaðarins leysum við ekki einungis með þessu frumvarpi og þessari litlu breytingu sem við gerum á því hvernig við leiðbeinum með lögum hæstv. landbúnaðarráðherra til að taka tilboðum í útboð á tollkvótum.

Ég veit ekki, virðulegi forseti, hvort ég get það tímans vegna en það er freistandi að við ræðum hvaða hugmyndir hægt væri að leggja á borðið til að breyta málum þannig að allir geti vel við unað. Ég hef sannfæringu fyrir þeim breytingum. Almennt vil ég lýsa því með þeim orðum að ég vil að við hverfum frá útboðum á innflutningsheimildum. Ég vil að innflutningsheimildir séu hluti af samningum við bændur og að sú vernd sem tollverndin veitir sé hluti af þeim verðmætum sem landbúnaðurinn telur til starfsskilyrða sinna. Það þýðir á mannamáli að við færum tollverndina, fjárhæð hennar, sem hluta af stuðningi við íslenska bændur eða hluta af starfsskilyrðum þessarar atvinnugreinar. Við tökum frekar upp útboðsgjöld sem miða að því að við verndum framleiðsluvilja og framleiðslugetu innan lands en látum það ekki vera á uppboðsmarkaði hvort til lengri eða skemmri tíma sé hægt að byggja upp viðkomandi búgreinar eins og fyrirkomulagið hefur verið í talsverðan tíma.

Ógæfuferð íslensks landbúnaðar hófst við tollasamninginn 2007 og ógæfuferðin varð svartari með tollasamningi sem gerður var 2017. Ógæfuferðin hófst ekki við GATT-samningana og það samkomulag sem náðist í kringum WTO þar sem samið var um lágmarksaðgang að innlendum markaði. En við höfum í allt of langan tíma umgengist atvinnugreinina með þeim hætti að hægt sé að þrengja meira og meira að henni, að það sé hægt að sækja meiri og meiri kjarabætur fyrir allan almenning í landinu með því að herða stöðugt að undirstöðum hennar.

Það má líka segja að í öllum siðuðum ríkjum, sem við berum okkur saman við, eru slíkar heimildir til aukins innflutnings verðmetnar. Reynt er að koma til móts við bændur til að takast á við slíka samkeppni. Það var gert í grænmetissamningnum en það hefur samt ekki virkað. Innlenda grænmetisframleiðslan hefur gefið eftir sem hlutfall af íslenskum markaði. Okkur hefur fjölgað á þessum tíma og hingað hafa komið ferðamenn sem hafa kannski ruglað þessa mynd meira en æskilegt er, þ.e. þegar við erum að bera saman hver ávinningur og árangur hefur verið.

Virðulegur forseti. Mér er málið mjög kært og enginn velkist í vafa um hvaða hagsmuni ég hef af því með beinum hætti, ég kannast alveg fullkomlega við það. En ég segi það hins vegar af fullri einlægni við þingheim, þekkjandi mjög vel til í þessari atvinnugrein, að það standa mjög margir í þessari atvinnugrein, eins og reyndar mörgum atvinnugreinum á Íslandi í dag í þessu ástandi, og bara víða í atvinnulífinu, frammi fyrir mjög alvarlegri stöðu. Ég held að við getum ekki lengur tekist á um þetta út frá einhverjum hagfræðiskólum. Við verðum að takast á um þetta með raunhæfum hætti og ræða miklu frekar um staðreyndir og segja það og gera það sem við meinum, ef við meinum eitthvað með því að við ætlum að standa á bak við íslenskan landbúnað.