151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[16:59]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ágæta ræðu. Það var margt mjög athyglisvert í henni og margt af því sem hann sagði má vel taka undir. Það er alveg greinilegt að hv. þingmaður þekkir vel til í landbúnaði og þarf ekki um það að deila eða draga með nokkrum hætti í efa. Engu að síður er það þannig að það frumvarp sem við erum að fjalla hér um er ekki gott frumvarp og að mínu mati ekki rétt aðferðafræði í þessu máli. Því er réttilega lýst að frumvarpið gengur út á það að bæta bændum búsifjar vegna Covid. Þess vegna kom það mér mjög á óvart að sjá breytingartillögu meiri hlutans um að lengja þetta tímabil um tvö ár. Hv. þingmaður fór yfir það að það kynni að orka mjög tvímælis að hafa gert það.

Ég vil þá í fyrsta lagi spyrja hv. þingmann beint að því, enda þótt hann hafi e.t.v. gefið það til kynna eða í skyn, hvort meiri hlutinn muni draga þessa tillögu sína til baka. Það er þá eiginlega fyrsta spurning mín, því að ég er sammála honum um að eigi þetta að vera Covid-aðgerð þá getur það ekki verið rétt að hún gildi svo lengi og miklu lengur en allar aðrar ráðstafanir sem gerðar hafa verið vegna Covid.