búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla aðeins í upphafi svars míns til hv. þingmanns að segja að þær almennu aðgerðir sem við höfum gripið til eiga mjög illa við þessa atvinnugrein. Hvort sem við tölum um tekjufallsstyrki, styrki vegna rekstrarstöðvunar eða önnur úrræði sem við höfum boðið upp á þá er eðli búskaparins með þeim hætti að þau eiga ekki við því að hér er ekki um rekstrarstöðvun að ræða. Hér er fyrst og fremst um markaðsbrest að ræða. Hér er um verðlækkanir að ræða. Og þó að ég hafi aðeins hleypt þingmanni roða í kinn í andsvörum í fjárlagaumræðunni með því að segja að við gætum ekki sett kýrnar á hlutabótaleiðina, þá má samt benda á að við vorum með almennar aðgerðir við afgreiðslu fjárlaga sem viðurkennir eiginlega það sem ég er að segja, að þessar almennu aðgerðir fyrir vinnumarkaðinn ganga ekki upp hér. Af því að hv. þingmaður spyr að því hvort við drögum þessa tillögu til baka þá segi ég að ég dragi hana til baka af því að ég er ekki viss um að ég hafi þingmeirihluta fyrir henni, svo ég komi bara heiðarlega fram. Ég hef því miður ekki náð að eiga samtal um við aðra í meiri hlutanum þannig að ég legg til að hún komi ekki til atkvæða, við þurfum að íhuga hana betur. Og gagnrýnin á að þetta sé út fyrir Covid-aðgerðir er réttmæt.