151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[17:03]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir heiðarlegt svar og kann svo sannarlega að meta það. Ég fagna því að það stefni í þetta. En almennt talað um stuðningsaðgerðir hefði ég haldið að bændur gætu notið þeirra ráðstafana sem þegar hefur verið gripið til, að einhverjum hluta í það minnsta. Ég get alveg fallist á að bændur hafi að mörgu leyti sérstöðu, það þurfi að nálgast þeirra vanda með öðrum hætti til viðbótar en aðra tegund atvinnustarfseminni. En í grundvallaratriðum er vandinn sá sami, það er markaðsbresturinn, ég held það. En að sama skapi höfum við í Viðreisn m.a. talað um að beita aðferðum sem eru meira sérsniðnar að vanda hverrar greinar. Við höfum talað fyrir því hér í þinginu og lagt fram margar tillögur þess efnis, ég nefni sérstaklega tillögur varðandi veitingageirann. Þær tillögur hafa allar verið felldar. En ég held að fólk ætti að velta því mjög fyrir sér að skoða leiðir sem væru þá betur búnar í þeim skilningi að það væri stuðningur sem rynni beint til bænda í stað þess að notast svona óbeinar aðferðir sem hafa hliðarafleiðingar, sem eru að mati mjög margra umsagnaraðila um málið mjög slæmar og geta valdið einhvers konar röskun á markaði. Er ekki skynsamlegra að reyna að finna leiðir sem koma þá beint til bænda en fara ekki svona krókaleiðir að því marki?