búvörulög.
Herra forseti. Ég tæpti á því í framsöguræðu minni hvernig starfsumhverfi og samkeppnisumhverfi afurðastöðva landbúnaðarins væri með öðrum hætti en við þekkjum nú orðið í þeim löndum sem við erum að keppa við. Ég segi þá: Við höfum því miður ekki þau úrræði sem þar eru, en það væru þau úrræði sem helst kæmu að gagni við þær aðstæður sem eru núna. En það væri hreintrúuðu fólki í þeim efnum væntanlega ekki mjög að skapi.
Af því að hv. þingmaður nefndi veitingageirann þá höfum við ekki gripið til sértækra aðgerða. Við höfum fyrst og fremst verið í almennum aðgerðum. Það sem víkur þar frá er 971 millj. kr. sem við samþykktum í 2. umr. fjárlaga vegna samninga við bændur sem verða þá útfærðir í samstarfi við bændur vegna ýmissa þátta sem þar geta komið að gagni. Ég hefði að sönnu viljað halda á slíkum úrræðum sem samkeppnislög annarra landa heimila í landbúnaði í dag, af því að þau felast m.a. í því að menn geta tekist á um það ástand sem nú hefur skapast. Með aðgerðinni að heimila landbúnaðarráðherra að velja hæsta tilboð í tollkvóta erum við fyrst og fremst að skapa eitthvert rými fyrir það að losna við lifandi birgðir í sláturhús. En ég ítreka það sem ég sagði í framsögunni, þegar við reynum að skapa þetta pláss eiga að neytendur ekki að þurfa að óttast verðhækkanir af þeim sökum, vegna þess að það hlýtur að vera eðli markaðarins að þegar jafn miklar birgðir hafa safnast upp hér á landi og raun ber vitni hlýtur það að hafa áhrif á verð.