151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[17:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég geri engar athugasemdir við að við opinberum hvort sína skoðun í Sjálfstæðisflokknum í þessum málum vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn er regnhlíf margra skoðana og það er hlutverk okkar að takast á um þær og komast að sameiginlegri niðurstöðu vegna þess að við hv. þingmaður, sem hér veitti andsvar, er fullkomlega meðvitaður um að við verðum að leysa þessi mál og að við eigum að standa vörð um og efla íslenskan landbúnað. Það veit ég að við hv. þingmaður erum sammála um.

Svar mitt við spurningu þingmannsins er nei, við viljum ekki ganga til baka, en já við því, og ég var mjög einlægur í framsöguræðu minni þegar ég sagði að værum komin að ákveðnum endamörkum við það hvernig við framkvæmum þessa hluti og þess vegna reyndi ég að tæpa á því að hvernig leiðin út úr því væri.

Það er aftur á móti mjög viðkvæmt því að við erum að tala hér um manneskjur, við erum að tala um fólk og fjölskyldur sem fjárfestu fyrir marga milljarða króna en sitja í dag uppi með miklar skuldir á herðum vegna þess að það ákvað að taka slaginn, vegna þess að það ákvað að byggja upp, vegna þess að það ákvað að sækja sér nýja tækni til að létta sér störf og bæta aðbúnað gripa. Aðalfjárfestingin í íslenskum landbúnaði á undanförnum árum hefur fyrst og fremst verið fjárfesting í aðbúnaði, fjárfesting í velferð dýra, en eftir sitja miklar skuldir á mjög mörgum heimilum og nánast óbærilega mörgum og það er stóra breytingin á íslenskum landbúnaði frá því sem áður var, hversu skuldsettur hann er orðinn. Ég veit að við hv. þingmaður munum tala fyrir því að finna viðunandi lausn og marka nýja stefnu til sóknar fyrir íslenskan landbúnað.