151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[17:12]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo því sé haldið til haga þá mun ég ekki styðja breytingartillögu sem hv. þingmaður mælti hér fyrir um þennan langa stuðning með vísan til Covid. En spurning mín gekk líka aðeins lengra vegna þess að ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður átti sig ekki mögulega á því, eða geti verið mér sammála um það, að sú leið sem mælt er fyrir um í frumvarpinu sjálfu, hvort sem það er eitt ár, þrjú ár eða fjögur ár, sé til þess fallin að draga á langinn þá endurskoðun sem einmitt þarf að fara fram þegar kemur að stuðningi við landbúnaðinn, vilji menn styðja landbúnaðinn, sem menn þurfa auðvitað að ræða, en ég held að flestir vilji með einhverjum hætti gera það eða mjög margir a.m.k. Sú endurskoðun ætti auðvitað að miða að því að gera þann stuðning miklu gagnsærri og beinni og eins og hefur verið nefnt hér, reyndar í andsvari, beinni gagnvart bændum sjálfum en ekki alls kyns milliliðum eða, ef við getum orðað það svo, saklausum vegfarendum sem verða fyrir í þessu kerfi.

Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður geti varpað einhverju ljósi á skoðun sína á því hvort þetta frumvarp, eins og það kom inn til þingsins, væri ekki nokkur bjarnargreiði í þessum efnum gagnvart bændum og hvort ekki færi betur á að frumvarpið sjálft fengi að hvíla og menn fengju tækifæri til þess á næstu vikum að útfæra einhvers konar annan stuðning við bændur í tengslum við Covid sérstaklega.