151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[17:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Forseti. Mér er nokkur vandi á höndum að svara þessum spurningum hv. þingmanns því að ég verð að segja að í seinna andsvari sínu fannst mér hún eiginlega afhjúpa að hún þekkti í raun og veru ekki hvernig við stöndum að þessum málum. Við erum ekki með neinn stuðning við milliliði í landinu. Við erum með búvörusamninga sem byggja á því að stuðningurinn er beint við framleiðsluna sjálfa og ég ætla ekkert að fara neitt lengra út í það og segja að þingmaðurinn sé að misskilja kerfið, ég held frekar að þetta hafi verið fótaskortur á tungunni.

Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að við eigum, og ég hef sagt það nokkrum sinnum áður, að feta nýja slóð en hvort samþykkt þessa frumvarps fresti því finnst mér aftur á móti — ég verð bara að segja að mér finnst þetta frumvarp vera talandi tákn um það hversu úrræðalaus við erum í löggjöf um starfsskilyrði íslensks landbúnaðar. Mér finnst það algerlega kristallast hér að við höfum vanrækt þessa atvinnugrein í mjög langan tíma. Ég skal alveg bera alla ábyrgð á því sem mér tilheyrir í þeim efnum. Við tókumst á við offramleiðslu í landinu upp úr 1980, við skárum niður í sveitum og við fækkuðum bændum. Þeir hafa byggt sig upp að nýju og eru nú að fást við fjölbreytt verkefni. Á sama tíma héldum við ekki utan um ýmsa stoðþætti sem landbúnaðurinn þarf á að halda og mesta fátækt íslensks landbúnaðar og vandi þess að fjalla um þetta mál hér í dag er t.d. bara hver er raunstaðan, hverjar eru hagtölur landbúnaðarins í raun og veru? Við erum fátæk af þeim og það litar alla ákvarðanatöku í málefnum þessarar atvinnugreinar.