151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[17:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar hans. Ég vildi að ég væri með jafnmikla sannfæringu og hv. þingmaður og gæti bara talað eins og ég veit að bændur myndu vilja heyra. Ég vildi það en ég geri það ekki. Ég leyfi mér það ekki vegna þess að við berum ábyrgð og það er ábyrgðarhluti að hvetja til samningsbrota. Viðskiptahagsmunir okkar eru miklu stærri en það sem um ræðir hér, miklu stærri. Og við höfum alveg dæmi um það að á grundvelli EES-samningsins hafi Íslandi verið hótað vegna útflutnings sjávarafurða eða settar skorður. Það var gert hér í kringum árið 2000 þegar við vorum með ákveðnum hætti þvinguð inn í matvælatilskipunina. Og það var allt á forsendum sjávarútvegs.

Ég verð bara að segja, virðulegur forseti, að það er staðreynd að hagsmunum íslensks landbúnaðar hefur lengi verið fórnað fyrir hagsmuni sjávarútvegs. Þar er verið að taka meiri hagsmuni fyrir minni. Við höfum því miður ekki haft pólitískt þrek á Alþingi, sama í hvaða flokki það er, til að standa í alvöru á bak við íslenskan landbúnað og leyfa honum að vaxa og eflast. Við höfum tekið langt skeið þar sem við höfum kreist hagræðingu út úr íslenskum landbúnaði. Hann hefur plumað sig, framleiðendur hafa framleitt meira. Það er verið að framleiða meiri mat og matvaran er vinsæl. Ég ætla ekki heldur að kyngja því að Miðflokkurinn sé einhver sérstakur frelsandi engill fyrir íslenskan landbúnað og segi bara eins og menn vilja heyra. (Gripið fram í: Hvers konar rugl er þetta?)