151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[17:34]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Sigurður Páll Jónsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Talandi um minnimáttarkennd þá verð ég að viðurkenna að ég fann aðeins fyrir henni í andsvari hv. þingmanns. Ég bara átta mig ekki á því hvernig hv. þingmaður getur fullyrt að um samningsbrot sé að ræða þegar ég sagði hér áðan að framkvæmdastjóri ESB hefði lýst yfir neyðarástandi og þar hafi verið gripið til neyðaraðgerða. Nú vil ég bara lesa hér texta sem ég var búinn að skrifa niður því að ég átti von á þessari spurningu: Einhverjir kynnu að gagnrýna tilvísun í 112. gr. EES-samningsins, en sú gagnrýni byggir að margra áliti á misskilningi, ef ESB telur að notkun 112. gr. EES-samningsins sé ekki réttlætanleg. Ef ESB hefur með yfirlýsingu sinni talið að neyðarástand ríki í málefnum bænda þá er mál ESB tekið upp í sameiginlegu EES-nefndinni þar sem menn reyna að finna lausn.

Þetta er nú allt það sem ég hef áhyggjur af. Og talandi um að Miðflokkurinn vilji tala eins og einhver verndarengill af himnum ofan fyrir landbúnað þá vil ég ekki taka undir það. En við viljum vernda landbúnað á þann hátt að það gagnist. Landbúnaður er í miklum vanda og við lifum á fordæmalausum tímum og þá þarf að taka djarfar ákvarðanir.