búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Já, ég er trú sjálfri mér þegar kemur að landbúnaði. Ég tel mikilvægt að styðja við íslenskan landbúnað þannig að það sé algjörlega skýrt. Ég vil hins vegar ekki gera það með því að beita úrræðum sem í sögulegu samhengi séð hafa alltaf leitt til þess að dýpka kreppur. Allir hagfræðingar, allir sérfræðingar, hafa sagt: Ekki hækka tollmúra og auka tollvernd, beitið frekar beinum styrkjum. Þangað beini ég sjónum mínum, við eigum að fara í beina styrki. Við eigum að fara í hvata fyrir landbúnaðinn og ekki síst núna er mjög auðvelt að reikna út og fara í beina styrki fyrir bændur og fyrir landbúnaðinn til að bregðast við erfiðleikum út af Covid. Það eru varnaglar eins og í 112. gr. og auðvitað eigum við Íslendingar að geta beitt þeirri reglu en ekki til þess að fara í eitthvert pólitískt kapphlaup út frá sjónarmiðum eins og eru ríkjandi innan Miðflokksins. Þau eru í rauninni að mínu mati að beita sýndarmennsku því það gagnast ekki landbúnaði, það gagnast ekki íslensku samfélagi, að hleypa upp samningnum á þessum tíma af því að við getum alveg eins og Evrópusambandið farið í aðgerðir og það er alveg hárrétt, Evrópusambandið er búið að fara í mjög viðamiklar aðgerðir, fínt. Við eigum að gera það líka. En við eigum ekki að auka tollverndina. Samkvæmt skýrslu sem var sett fram af hálfu atvinnuvegaráðuneytisins og m.a. Bændasamtökin stóðu að er tollverndin í Noregi 77%. Þeir hafa reyndar ekki breytt neinu um tollvernd núna. Þeir hafa bara farið í beina styrki eins og við erum að kalla eftir. Tollverndin á Íslandi er 74%, aðeins minni en í Noregi. Innan Evrópusambandsins er hún 4%. Evrópusambandið fór ekki í að hækka tollverndina, að hækka tollmúra. Þeir fóru í massífa, beina styrki til að koma þeim beint til bænda, ekki í milliliðina, eins og mér finnst Miðflokkurinn vera fyrst og fremst að einblína á, að hossa milliliðunum(Forseti hringir.) í stað þess að beina sjónum sínum beint að bændum (Forseti hringir.) og styrkja þá til þess að halda framleiðslu sinni gangandi.
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á tímamörk.)