151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:03]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við höfum það á hreinu. Miðflokkurinn vill fara leið tollmúra, það er bara alveg á hreinu, vill fara þá leið sem þeir boða og vilja m.a. setja alþjóðlega samninga Íslands í uppnám. Ég vil taka undir það sem sagt hefur verið að við þurfum að vega hagsmunina í heildarsamhengi og ég tel að það muni ekki þjóna hagsmunum m.a. sjávarútvegs ef við ætlum að fara henda þessum samningi upp í loft af því að við getum leyst þessi mál með öðrum hætti, með því að styrkja bændur beint. Það sem við þurfum að gera er að styrkja stöðu bænda gagnvart afurðastöðvunum. Takið þátt í því með okkur að styrkja bændur gagnvart afurðastöðvunum. Það skiptir gríðarlega miklu máli að gera það.

Varðandi fjárhæðir styrkjanna er hugsunin einfaldlega annars vegar sú að við verðmetum tollverndina sem er í frumvarpinu. Það er mjög erfitt að finna það og það eru sérfræðingar innan ráðuneytisins sem geta gert það. En það er síðan auðvelt að finna út úr því (Forseti hringir.) hvaða beingreiðslur hafa verið til bænda og reikna út styrkina út frá þeim sjónarmiðum og þekkingu sem þar er.