151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég var nú búin að veðja við sjálfa mig að hv. þm. Haraldur Benediktsson kæmi einmitt upp í þessu stuði af því að það er óþægilegt fyrir hann að fá hrós frá Viðreisn þegar kemur að landbúnaðarmálum. Þetta andsvar endurspeglaði það hins vegar, þegar hann segir að það sé ekkert að frétta, að gott og vel, hann telur ekki rétt að nýta samstöðu og samhljóm héðan úr þinginu. Ef hv. þingmaður sem er í andsvari við mig við vildi hlusta aðeins. (Gripið fram í: Hann er örugglega að hlusta.) Þá er hann fyrstur karlmanna sem getur gert margt í einu sem ég þekki.

Það sem ég er að segja er að við eigum að nýta þann samhljóm sem er hér í þinginu og það er greinilegt að hv. þingmaður vill ekki gera það af því að honum finnst óþægilegt að hlusta á það að Viðreisn segi: Já, við eigum að styrkja bændur, við eigum að gera það með beinum hvötum, grænum hvötum, tengja með öðrum hætti en að vera hossa afurðastöðvunum, sem hv. þm. Haraldur Benediktsson er núna allt í einu orðinn góður talsmaður fyrir en talaði máli bænda hér rétt áðan. Hann þarf að fara að ákveða sig. Það er alveg ljóst að núverandi kerfi þjónar ekki bændum beint. Um það vitna samtöl mín við ótal bændur í gegnum tíðina sem hafa kallað á það að stoppa ægivald afurðastöðva yfir landbúnaðinum. Menn koma hér aftur upp aftur og á endanum er þetta alltaf það sama: Það má ekki hrófla við neinu.

Mér finnst merkilegt ef Sjálfstæðisflokkurinn, þótt ég sé byrjuð að heyra þar einhverjar efasemdaraddir sem ég á nú eftir að sjá hvað gera þegar til kastanna kemur, ætlar að fara að boða tollvernd og tollmúra sem lausn við öllu í staðinn fyrir að hafa þetta einfaldlega gegnsærra og í formi beinna styrkja, eins og við í Viðreisn erum að boða. Það er allt á sömu bókina lært, menn koma hingað upp og segja eitthvað voða fallegt um frelsið en síðan er engin alvara að baki. Það sárasta er að þetta nýtist aldrei bændum. Það er verið að nota þessa velvild (Forseti hringir.) gagnvart bændum, velvild íslensku þjóðarinnar, (Forseti hringir.) en síðan er alltaf staðinn vörður um gamalt úrelt kerfi (Forseti hringir.) sem þjónar ekki neytendum og hvað þá bændum.

(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á tímamörk.)