búvörulög.
Herra forseti. Ég tók það fram að ég væri með ókurteisi og baðst fyrir fram velvirðingar á því. Ég segi bara að hér er lögð fram breytingartillaga með engum upphæðum og engri aðferð. Þess vegna sagði ég að mér fyndist vera lítið að frétta. Ég spurði líka að því hvaða tillögur hv. þingmaður hefði flutt í þessum efnum þegar hún sat sem landbúnaðarráðherra. Ég spurði líka hvort hv. þingmaður gerði sér grein fyrir því hversu marga milljarða hún þarf að taka úr ríkissjóði til þess að umbreyta tollverndinni yfir í beinar greiðslur. Ég held að það sé mikilvægt að við drögum þá upphæð upp á borðið. Síðan vil ég segja, herra forseti, bara vegna þess að hér er dregin upp einhver umræða um tollmúra í Bandaríkjunum sem dró kreppu á langinn, að það er ekki boðlegt að setja Ísland í eitthvert samhengi við slíkt sem hefur einhverja frjálslyndustu viðskiptastefnu hér í vestrænum heimi. Frelsið býr ekki í nautahakki, virðulegi forseti.