151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:09]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi síðustu ummælin þá eru nú bara áhöld um það, hvort frelsið, ef við leitum að því, sé ekki einmitt að finna um allt. Ég el þá von í brjósti og hafna því að menn fái ekki að vitna í sögulega reynslu þjóða sem hafa farið í gegnum stórar og miklar kreppur, jafn djúpa kreppu og við erum að upplifa í rauninni núna, mjög erfiða kreppu, sú kreppa var reyndar dýpri, þegar Alþjóðaviðskiptastofnunin var einmitt stofnuð á grunni þess að það voru reistir múrar sem höfðu mjög djúpar og vondar efnahagslegar afleiðingar, ekki síst fyrir almenning og láglaunafólk í landinu.

Hvaða tillögur kom ég með sem ráðherra? Þær voru löngu tilbúnar þegar þessi ráðherra sem nú situr kom. Þær lágu á borðinu. Það tók meira en tvö ár að koma fram með frelsistillögu. Og ef hv. þingmaður er búinn að gleyma því þá var það ríkisstjórn sem sprakk áður en haustþing kom saman. (Forseti hringir.) Hins vegar var ég að vinna í því að verjast því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins gætu komið í gegn útflutningsskyldu (Forseti hringir.) sem hefði kostað íslenskan almenning og íslenska neytendur hundruð milljóna króna.