151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:11]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Sigurður Páll Jónsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir ræðu hennar sem var á frekar kunnuglegum slóðum úr hennar ranni. Þingmanninum varð tíðrætt um frelsi, græna kosti, loftslagsmál og annað slíkt í sambandi við landbúnað og að við ættum að styrkja landbúnaðinn. Ég átta mig ekki alveg á því hvað þingmaðurinn er að fara þegar við erum að tala um neyðaraðgerðir. Hún talar um yfirboð okkar í Miðflokknum sem ég get ekki tekið undir.

Gott og vel með beina styrki og allt slíkt, eins og Evrópusambandið hefur gripið til, en kjötbirgðir lagast ekki við beina styrki. Þetta er spurning um að koma vörunum á markað áður en vandamálið verður enn verra. Þetta er neyðarástand og við erum að leggja hér fram tillögu til að bregðast við því neyðarástandi sem er til staðar á Íslandi. Svo getum við talað um hvernig við eigum að búa um landbúnaðinn í framtíðinni og tekist á um það. Það eru allir vinir landbúnaðarins en þegar þessi staða kemur upp og við í Miðflokknum komum með aðgerð sem mun virka erum við sagðir vera með yfirboð. Það tek ég bara ekki undir.

Hv. þingmaður var að tala um styrki og annað slíkt sem ESB hefur gripið til. Þeir hafa líka talað um undanþágu frá samkeppnisreglum. Mig langar að spyrja: Við hvað er þingmaðurinn hræddur (Forseti hringir.) í sambandi við 112. gr. samningsins sem hún talar um að Miðflokkurinn sé að brjóta með þessari tillögu?