búvörulög.
Virðulegi forseti. Það hefur komið fram að tollasamningurinn okkar sem við erum m.a. að ræða hér, beint og óbeint, hefur ekki eingöngu áhrif á landbúnað heldur á ýmsar aðrar atvinnugreinar, þar á meðal sjávarútveg. Það hefur komið skýrt fram að þegar við erum að beita og ætlum að beita 112. gr., sem hendir samningnum svolítið upp í loft, er eins gott að við séum búin að kortleggja hvaða hagsmunum við ógnum með því. Ég sé hvergi í tillögum Miðflokksins kortlagningu á því hvaða hagsmunir gætu legið undir ef við hendum samningnum upp í loft. Ég sé m.a. hvergi áhersluna á sjávarútveg og hvaða áhrif það myndi hafa á útflutningsafurðir okkar og verðmæti. Við verðum að fara varlega í svona belgingshátt sem mér finnst fólginn í því að segja bara að við leysum málið með því að segja þessum samningi upp. Það eru allir komnir í kapphlaup, ekki síður utanríkisráðherra, í því að vera með efasemdir gagnvart tollasamningnum. Og við munum örugglega fá að sjá það núna á næstunni þannig að ég svari því.
Ég náði ekki að svara því í öðrum andsvörum við hv. þm. Harald Benediktsson en það sem ég er að segja er að við eigum — og kannski skiptir máli að af því að ég segi það þá er ekkert að marka það, þá er það bara innihaldslaust, en ef aðrir segja það skiptir það máli — að verðmeta tollverndina. Við vitum að beinn stuðningur er 16–17 milljarðar í gegnum búvörusamninginn. Síðan hafa menn verið að reikna tollverndina frá 9 milljörðum og upp í 14 milljarða. Það fer eftir því hvaða tollvernd við erum að taka inn í reikningsdæmið. Það er hvergi hægt að nálgast nákvæma verðlagningu á þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Hleypur hún á hundruðum milljóna? Það er ekki alveg öruggt. Það er hægt að finna það út. (Forseti hringir.) En við eigum að segja: Gott og vel, hvaða hagsmuni höfum við af því (Forseti hringir.) að verðleggja tollverndina og koma tollverndinni að hluta eða öllu leyti til landbúnaðarins (Forseti hringir.) en hafa opnara markaðssinnaðra samfélag í staðinn?