151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nákvæmlega þetta sem ég er að segja: Af hverju horfum við ekki einmitt til Evrópusambandsins? Við í Viðreisn höfum ekki verið að gagnrýna stuðning Evrópusambandsins sem er mjög massífur við bændur. Við eigum að líta til þeirra af því að þeir eru með regluverk um það og tengja saman í gegnum díalóg bændur, neytendur, samkeppnisyfirvöld og stjórnvöld. En hvað gerir íslenska ríkisstjórnin? Hvað gerir hún? Hún talar ekki við neytendur og Neytendasamtökin, hún talar ekki við verslunina og síðast en ekki síst talar hún ekki við samkeppnisyfirvöld. Það kemur alveg skýrt fram hjá Samkeppniseftirlitinu og það eru ánægjuleg ljós að kvikna hjá því. Það er að segja: Það þarf að styrkja bændur og þeirra samkeppnisstöðu gagnvart afurðastöðvunum, gagnvart milliliðunum. En það er ekkert verið að vinna með það. Ég vil því fullyrða það hér að ef leitað hefði verið til Samkeppniseftirlitsins og leitað eftir samstöðu um þetta mál hefðum við getað farið aðra leið (Forseti hringir.) en að fara í tollmúrana til að styðja við íslenskan landbúnað (Forseti hringir.) og þá um leið að styðja við íslenska neytendur. En ríkisstjórnin kaus (Forseti hringir.) að hafa ekki samband eða tengsl við neytendur, við bændur, (Forseti hringir.) við samkeppnisyfirvöld eða ASÍ.