151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:18]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Við ræðum hér breytingu á búvörulögum. Eins og fram hefur komið felur málið í sér að vikið verði tímabundið frá nýju fyrirkomulagi við útboð tollkvóta, svokölluðu jafnvægisútboði, og eldra útboðsfyrirkomulag endurvakið. Í greinargerð með frumvarpinu er farið yfir versnandi stöðu innlendrar matvælaframleiðslu í ljósi heimsfaraldurs. Breytingarnar sem voru gerðar á fyrirkomulagi útboðs við úthlutun tollkvóta í byrjun árs 2020 voru þó a.m.k. skref í rétta átt. Eins og kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans bárust 13 umsagnir um málið en aðeins þrjár þeirra voru jákvæðar. Allar hinar voru neikvæðar og vöruðu beinlínis við samþykkt málsins, enda er hér verið að gera breytingar sem munu kosta neytendur beinharða peninga, eða eins og Neytendasamtökin benda á í sinni umsögn þá yrði þetta eina aðgerðin sem ríkisstjórnin hefur gripið til með það að markmiði að lágmarka áhrif kórónuveirufaraldursins sem kostuð yrði með sértækum álögum á neytendur.

Í umsögn ASÍ segir, með leyfi forseta:

„Samantekið má segja að breytt fyrirkomulag við útboð tollkvóta hafi komið neytendum til góða og hækkun á afurðum sem falla undir útboð tollkvóta reynst hófleg samanborið við verðþróun á annarri matvöru. Þannig jókst vöruúrval og mældist meðalhækkun á kjötafurðum einungis 1,2–4,9% á sama tímabili og gengi krónunnar veiktist um 17%. Á sama tímabili hækkaði verð á sambærilegum innlendum vörum um á bilinu 1,6–5,1%.“

Segja má þó að allar umsagnirnar eigi það sameiginlegt að tilgreina að mun meira þurfi til að hjálpa íslenskum landbúnaði en þær breytingar sem hér eru lagðar til. Því erum við í Samfylkingunni líka sammála. Eins og kom fram í ræðu hv. formanns Samfylkingarinnar í 1. umr. leggst Samfylkingin gegn þessu frumvarpi en tekur undir og leggur áherslu á mikilvægi þess að bregðast við vanda greinarinnar og því hvetjum við ríkisstjórnina til að mæta frekar bændum með fjárstuðningi og verja neytendur landsins fyrir verðhækkunum. Það eru röng viðbrögð við kreppu að koma í veg fyrir heilbrigða samkeppni með aðgerðum sem koma sér illa fyrir neytendur. Við í Samfylkingunni höfum talað fyrir opinberum stuðningi við landbúnaðarframleiðslu en það er lykilatriði þegar honum er komið fyrir að hann raski ekki samkeppni meira en nauðsyn krefur og tryggi bændum og neytendum hámarksávinning.

Í umsögn Samkeppniseftirlitsins segir, með leyfi forseta:

„Rannsóknir hafa sýnt að aðgerðir sem fela í sér veikingu samkeppni eru til þess fallnar að lengja efnahagserfiðleika á mörkuðum.“

Þetta frumvarp mun verja afurðastöðvar fyrir samkeppni með hærra verði og á kostnað hagsmuna bænda, enda er engin trygging fyrir því að afurðastöðvarnar hækki verð til bænda þótt svigrúm myndist til þess. Að sama skapi er nánast öruggt að verð á vörum til neytenda muni hækka. Þetta er því sérstaklega vond aðgerð, einmitt í ljósi þess að vegna Covid eru þegar um 25.000 manns atvinnulausir. Þeir einstaklingar þurfa að horfa í hverja einustu krónu.

Samkeppniseftirlitið segir einnig í umsögn sinni, með leyfi forseta:

„Með hliðsjón af öllu framangreindu er það mat Samkeppniseftirlitsins að frumvarpið, verði það að lögum, sé til þess fallið að skaða hagsmuni neytenda sem og bænda. Þar að auki er sú aðferðafræði sem beitt er með frumvarpinu til þess fallin að draga rekstrarerfiðleika í greininni á langinn og seinka efnahagslegum bata þegar yfirstandandi faraldri lýkur.“

Herra forseti. Eins og fram hefur komið í umræðunni hefur Ísland undirgengist skuldbindingar um að leyfa innflutning á landbúnaðarvöru, annars vegar á lágum tollum og hins vegar á kvótum. Yfirlýst markmið þeirra samninga af hálfu Íslands hefur verið að skapa aðhald í verði og gæðum en þegar innflutningskvótarnir eru boðnir upp skapast hvorugt. Verðið verður nokkurn veginn það sama og á hinni innlendu framleiðslu og vegna þess hve mikið er borgað fyrir kvótana fara menn í það að flytja inn lélegustu vöruna, ódýrustu vöruna. Það er heldur ekki gott fyrir neinn.

Matvælaframleiðsla hefur, eins og stór hluti þjóðarinnar, orðið fyrir efnahagslegu áfalli á þessu ári. Ýmsar greinar landbúnaðarins standa ekki vel og rekstur bænda er af þeim sökum ekki í góðu ásigkomulagi. Þannig var staðan jafnvel áður en Covid kom til sögunnar og þess vegna teljum við í Samfylkingunni það mun skynsamlegra að styðja frekar beint við bændur í formi fjárstuðnings vegna heimsfaraldursins. Þá tek ég undir með flutningsmanni meiri hluta atvinnuveganefndar um að við verðum að fara að taka stöðu landbúnaðarins alvarlega eins og hann nefndi í ræðu áðan. Með það í huga hljótum við að þurfa að fara að endurskoða íslenskt landbúnaðarkerfi með hliðsjón af hagsmunum bænda og hagsmunum neytenda og ekki síst með tilliti til loftslagssjónarmiða. Ég vil hvetja hv. þingmenn til að kynna sér nýja skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands, Loftslag, kolefni og mold eftir Ólaf Arnalds og Jón Guðmundsson, en þar koma fram atriði sem við hljótum að þurfa að skoða alvarlega. Við hljótum að geta stutt betur við bændur í ljósi allra annarra aðgerða stjórnvalda.

Í greinargerð málsins segir að innflutningur samkvæmt tollkvótum hafi haldist óbreyttur. Tölur frá Hagstofunni sýna okkur ekki að innflutningur tollkvótavara hafi haldist óbreyttur heldur þvert á móti að innflutningur hafi dregist saman. Neikvæð áhrif vegna Covid má finna víða í okkar samfélagi þótt höggin hafi verið misþung, herra forseti. Einnig er hægt að líta á þetta mál út frá sjónarhorni veitingamanna sem hafa lent í miklum rekstrarerfiðleikum. Skert samkeppni sem leiðir af sér hærra vöruverð mun einungis auka vanda veitingamanna og auka óvissu. Þetta er viðkvæm keðja, herra forseti; bændur, afurðastöðvar, verslanir, veitingaaðilar og neytendur, sem við verðum að fara varlega með.

Það sem skortir einnig algerlega í þessu máli er greining á stöðu matvælaframleiðslunnar, hvert tekjufall framleiðenda er nú þegar og hversu almennur vandinn er. Þannig bendir Viðskiptaráð í umsögn sinni á að villandi sé að setja fram fjölda ferðamanna í þessu samhengi þegar kemur að matvælaframleiðslu. Ef gert er ráð fyrir að hver af þessum tveimur milljónum ferðamanna hafi dvalið á landinu í fimm til sex daga þýði það að um 30.000 ferðamenn voru á landinu á hverjum tíma. Á móti komi að Íslendingar ferðist ekki til útlanda svo ætla megi að fækkun neytenda á matvörumarkaði hafi verið vel innan við 10% og í takti við einkaneyslu almennt. Þá er í greinargerð málsins bent á að ekki hafi orðið samdráttur á innflutningi tollkvótavara, en fram kom á fundum nefndarinnar að óskað hefði verið eftir frestun á því að leysa inn tollkvóta og jafnvel óskað eftir að skila honum inn gegn endurgreiðslu. Ráðuneytið mun hafa hafnað slíkum kröfum og olli þar með að einhverju leyti sjálft a.m.k. hluta þeirrar stöðu sem við erum í.

Herra forseti. Ef við skoðum aðgerðir annarra landa er þetta ekki leið sem önnur lönd í kringum okkur hafa farið til að styðja við landbúnað sinn vegna Covid-19. Samkvæmt upplýsingum sem upplýsingaþjónusta þingsins tók saman fyrir okkur er staðan þannig á Norðurlöndunum sem og í ESB-löndunum ásamt Nýja-Sjálandi að stjórnvöld hafa beitt almennum aðgerðum til að vinna gegn tjóni af völdum Covid-19, aðgerðum eins og skattaívilnunum, beinum greiðslum, eiginfjáraukningu og ríkisábyrgð á lántöku með niðurfellingu eða frestun á gjalddögum. Þá útvíkkaði framkvæmdastjórn ESB tímabundið heimildir til ríkisaðstoðar sem veitt er vegna endurfjármögnunar og hagkvæmrar endurgreiðslu. Hafa því Evrópuríkin meira svigrúm til að styðja við landbúnað með þess konar ráðstöfunum. Hvorki Noregur, Bretland né Nýja-Sjáland hafa hækkað tolla til að bregðast við Covid-vandanum.

Herra forseti. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að við viljum öll að stundaður sé á Íslandi öflugur landbúnaður, enda erum við stolt af framleiðslu okkar og búum til góða vöru. Hins vegar er staðreyndin, eins og bent er á í a.m.k. tíu umsögnum um málið, að tollar og verndarhyggja eru ekki til þess fallin að styðja við landbúnað og leiða einfaldlega til taps bæði neytenda og framleiðenda þegar til lengri tíma er litið. Við þurfum að horfa til beinni aðgerða, beins stuðnings við bændur og stuðnings við nýsköpun. Við eigum landbúnað á heimsmælikvarða, styðjum þá beint við þá sem stunda þann landbúnað til að geta sinnt starfi sínu áfram af stolti en treystum líka neytendum til að velja bestu vöruna.