búvörulög.
Herra forseti. Nú höfum við hlustað á þessa umræðu í töluverðan tíma og búið að koma víða við. Það er ljóst að það er gríðarlega stórt vandamál í gangi og ég held að almenningur almennt viti ekki og vitneskja sé ekki komin fram um að í stóru myndinni er um að ræða grundvallarmarkaðsbrest sem er að verða á kjötmarkaði, hvort sem er á Íslandi eða í Evrópu, og kerfið í heild sinni er að riðlast mjög. Ég held að töluverður hluti af vandamálinu sé upplýsingagjöfin og það vanti góðar upplýsingar um hvernig staðan er raunverulega. Ég held að það sé verulegt vanmat í t.d. þeim upplýsingum sem við höfum fengið í atvinnuveganefnd sem snúa að fækkun ferðamanna á Íslandi og hvaða áhrif það hefur haft á íslenska markaðinn á þessu ári. Það hefur mest verið talað um magnið en það hefur aldrei verið talað um verðmætið á bak við þetta magn. Mig grunar að í raun sé verið selja dýrustu bitana til ferðamanna á veitingahúsum landsins og þess vegna sé þetta enn þá meira verðmæti fyrir greinina en kemur fram í þeim gögnum sem við höfum verið að vinna með í nefndinni. Hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir kom aðeins inn á hvað hún sér fyrir sér í að leysa málið en það gæti kannski verið erfitt fyrir okkur að gera einn, tveir og þrír hér vegna þess að það er að komast mynd á málið og það er gríðarlega stórt. Hefur hún gert sér grein fyrir hver staðan er, stóra myndin, í vinnu atvinnuveganefndar? Við höfum ekki fengið metnar forsendur fyrir því hvaða upphæðir við erum að tala um varðandi markaðinn sem slíkan og þann markaðsbrest, sem ég talaði um, sem hefur orðið og hver staðan er í stóru myndinni.
Síðan langar mig að fara inn á annað á eftir sem snýr að Afríku og Evrópusambandinu.