búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ágætt andsvar. Þetta eru mjög áhugaverðir punktar sem hann kemur hér inn á. Ein af ástæðum þess að ég greiddi atkvæði gegn því í nefndinni að málið yrði tekið út strax, og þar er ég mjög sammála hv. þingmanni, er að við höfum ekki allar forsendur fyrir málinu, hvorki með því né á móti. Það kemur ekki skýrt fram í greinargerðinni sem ráðuneytið skilaði og það virðist líka verulega hafa skort á samráð við hefðbundna umsagnaraðila, málið fór ekki inn í samráðsgátt o.s.frv., þar sem við hefðum getað fengið mjög góðar upplýsingar. Jafnvel þó að Viðskiptaráð bendi á í sinni umsögn að ekki verði jafn mikil fækkun og ætla mætti, sem ég er sammála, Íslendingar eru ekki að fara út í staðinn, þá er ég líka alveg sammála hv. þingmanni vegna þess að við erum á sama tíma að horfa upp á hrun hjá mörgum Íslendingum í tekjum, ef við horfumst í augu við það. Ég held að gríðarlega margir séu bara meðvitað, eins og hv. þingmaður nefndi sjálfur í andsvari, að velja ódýrari bita. Dýru bitarnir hafa fyrst og fremst verið seldir inn á veitingastaði og veitingastaðirnir hafa náttúrlega þurft að draga saman vegna Covid. En ég held að neytendur séu líka að draga saman, séu að velja ódýrari bita, reyna að sýna aðhald í rekstri og auðvitað hefur það líka áhrif. Ég fór ekkert í launkofa með það í minni ræðu, en ef það kom ekki skýrt fram þá er staða bænda og staða landbúnaðarins gríðarlega alvarleg. (Forseti hringir.) En ég er ekki á því að þetta sé leiðin til að leysa þann vanda.