búvörulög.
Herra forseti. Þetta mál, sem ein breyta í því stóra samhengi sem ég er að tala um, er ekki að fara að bjarga íslenskum landbúnaði. Þetta er miklu víðtækari vandi. Ég óskaði eftir skýrslu ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um tollasamninginn sem var samið um 2015 og tók gildi í maí 2018. Það er ein breyta í þessum málum. Við þurfum á stóra samhenginu að halda og miklu betri upplýsingagjöf um hvernig málin standa efnahagslega í atvinnugreininni.
Ég fór með pólitískri nefnd NATO-þingsins til Afríku í september í fyrra. Við fórum í mannfjölgun í Afríku og hvað væri að fara að gerast á næstu árum. Það var gríðarlega áhugavert. Við hittum fulltrúa stjórnvalda Eþíópíu og ekki síður Afríkuráðsins. Hvað haldið þið að hafi komið upp í þeirri umræðu? Menn tala fyrst og fremst um að það sem haldi Afríku niðri sé tollabandalag Evrópusambandsins gagnvart útflutningi á matvælum til Evrópu. Þannig að þetta er ekki alveg svona einfalt, þetta er á heimsvísu, hvort sem það er Afríka, Brasilía, Bandaríkin o.s.frv., sem snýr að innflutningi til Evrópu. Evrópusambandið er í eðli sínu í þessu máli, í landbúnaðinum, tollabandalag, þetta snýst um að verja sína stöðu. Það væri mjög mikilvægt og áhugavert ef við fengjum fram mat á því hversu stórt þetta er í stefnu Evrópusambandsins, niðurgreiðsla á matvælum í Evrópu, í samanburði einstakra landa miðað við kaupmátt og allt þetta. Það var svo áhugavert í þessari heimsókn í fyrra hvernig Afríkubúar litu í raun svo á að Evrópa væri að halda þeim niðri með tollmúrum. Þessi umræða getur þannig farið vítt og breitt. Þessi heimsókn fyrir 15 mánuðum síðan rifjaðist upp vegna þess að við erum svolítið oft að hugsa bara um okkar heimssvæði, Ísland, síðan Evrópusambandið, okkar svæði. (Forseti hringir.) Það er svo margt annað og við gætum stækkað umræðuna í stóra samhenginu til að sýna að Evrópusambandið (Forseti hringir.) er líka tollabandalag, sem er bara að hugsa um sína hagsmuni og verja sinn landbúnað.