151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:36]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Í þeirri umræðu sem hefur átt sér stað hér í dag hafa mörg sjónarmið komið fram og sennilega er ég ósammála flestum sem hér hafa talað. Þar sem nokkuð er liðið á umræðuna og við erum þannig stödd í þingstörfunum að ekki er tilefni til að vera með löng ræðuhöld ætla ég að neita mér um að fara í almenna umræðu um landbúnaðarstefnu, viðskiptafrelsi og annað þess háttar. Ég vil þó bara, til að skýra mína nálgun, geta þess að ég er þeirrar skoðunar að viðskiptafrelsi sé þjóðum miklu hagfelldara en viðskiptahindranir. Það er mín grundvallarafstaða til mála af þessu tagi. Ég get, eins og margir sem hér hafa talað, verið þeirrar skoðunar að það beri að styðja landbúnaðinn með ýmsum hætti. Ég vil þá gera það þannig að það hafi sem minnst truflandi áhrif á viðskipti, hvort sem er innan lands eða milli landa. Þess vegna er ég almennt talað fremur fylgjandi því að stuðningur við landbúnað felist í beinum styrkjum frekar en hindrunum á viðskiptum milli landa eða samkeppnishindrunum innan lands. Það er svona almenna stefnan í þessu.

Varðandi það mál sem sérstaklega er hér til umræðu þá vildi ég segja að þegar það kom inn í þingið um síðustu mánaðamót, mánaðamótin nóvember/desember, var ég búinn að gera það upp við mig, þrátt fyrir að ýmislegt í því gengi kannski gegn grundvallarsjónarmiðum mínum, að styðja það á þeirri forsendu að þarna væri um að ræða bráðabirgðaaðgerð vegna tímabundins ástands. Við erum auðvitað að láta ýmislegt yfir okkur ganga vegna tímabundinna erfiðleika sem stafa af heimsfaraldri einum og slíku. Við þekkjum það að við höfum gripið til ýmiss konar víðtækari ríkisafskipta bæði í formi styrkja og alls konar aðgerða sem við erum vön að standa að og ég taldi að þetta mál væri af þeim toga. En ég verð að játa það að þegar breytingartillögur meiri hluta hv. atvinnuveganefndar birtast og gert er ráð fyrir því að ekki sé um að ræða eins árs frávik heldur þriggja ára, þá verð ég nokkuð hugsi.

Nú er komið fram í umræðunni að ætlunin er að skoða þetta mál aftur í nefndinni milli 2. og 3. umr. og ég styð það og tel að meta þurfi málið út frá því að ekki sé um að ræða tímabundna Covid-aðgerð heldur meira langvarandi aðgerð og aðgerð sem er, miðað við nefndarálit hv. meiri hluta atvinnuveganefndar, til að bregðast við aðstæðum sem eru ekki bara Covid-aðstæður heldur eitthvað miklu fleira. Nefndin þarf auðvitað að skoða málið út frá því og ég áskil mér rétt að taka síðan afstöðu til málsins þegar það kemur til 3. umr. En ég játa það alveg að nefndarálitið og þær breytingartillögur sem koma frá meiri hluta atvinnuveganefndar gera það að verkum að sá stuðningur sem ég hafði ákveðið að veita þessu máli er í uppnámi. Við munum taka þetta til umræðu frekar þangað til málið kemur til endanlegrar afgreiðslu þannig að ég áskil mér rétt til að koma í umræður síðar ef tilefni er til. En ég vildi bara útskýra það að mér finnst málið vera sett fram með allt öðrum hætti núna en þegar það var lagt fram um síðustu mánaðamót.