búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég vil hefja mál mitt á að þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu ræðu sem var í meira og betra jafnvægi en sumar ræður sem hafa verið fluttar hér í dag. Það er mála sannast að það viðfangsefni sem hér er við að eiga er stóralvarlegt mál sem verður að bregðast við. Það sem málið snýst um er ekki að menn séu ekki sammála um að það verði að bregðast við með einum eða öðrum hætti heldur er a.m.k. áherslumunur varðandi leiðirnar. Ég tel ástæðu til að þakka hv. þingmanni fyrir að ræða af þvílíku jafnvægi og yfirvegun sem hann gerði hér og án þeirra öfga sem sumir þingmenn hafa leyft sér í þessari umræðu í dag, með stóryrði eins og við heyrðum í einu mjög stóru máli, orkumáli, á sínum tíma, það mátti ekki einu sinni ræða það við Evrópusambandið öðruvísi en að allt færi hér í uppnám. Núna erum við í þeirri stöðu að þetta sama fólk kemur náttúrlega upp og segir að ef við svo mikið sem leyfum okkur að taka þetta upp við Evrópusambandið sé allt í háska og voða. Þetta skilar auðvitað engum árangri, ekki nokkrum einasta. Það er mjög flott að tala um beingreiðslur og annað slíkt og það má taka undir það að mörgu leyti. En það er engin leið að sjá með hvaða hætti beingreiðslur myndu leysa úr þeim vanda sem hér er, sem er þessi mikla birgðasöfnun og vegna þess að við erum hér í miðju kórónuveirufári hefur stórum hluta markaðarins verið svipt í burtu, sem eru hinir erlendu ferðamenn.
Spurningin sem ég vildi beina til hv. þingmanns svarar sér kannski að einhverju leyti sjálf, en tekur hann undir (Forseti hringir.) þann málflutning sem felur í sér orð eins og samningsbrot og að hér fari allt í fár (Forseti hringir.) gagnvart samskiptum okkar við hið ágæta Evrópusamband ef við leyfum okkur að grípa til aðgerða á borð við þær sem það hefur sjálft gripið til?