151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:52]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og það er ánægjulegt að eiga við hann samtal um þessi efni. Það eru nokkrar grundvallarstaðreyndir í málinu. Það er ekki nokkur þjóð á byggðu bóli, a.m.k. ekki í okkar heimshluta, sem ekki styður við sínar undirstöðuatvinnugreinar og býr þeim viðunandi og eðlileg starfsskilyrði. Númer tvö: Íslenskur landbúnaður er framleiðsluatvinnugrein og við þekkjum hennar framleiðsluvörur. Við vitum að það er hágæðavara sem einkennist til að mynda af því að lyfjanotkun er á allt öðru og lægra stigi en eiginlega nokkurs staðar í heiminum og þetta er hollustuvara og heilsusamleg vara sem er framleidd. Og þegar við mjög óvenjulegar aðstæður er að fást og mjög erfið skilyrði þá verður auðvitað, það er ekkert um annað að ræða, að grípa til aðgerða. En að sjálfsögðu verður að gæta hófsemi. Ég tel að sú tillaga sem við hv. þm. Sigurður Páll Jónsson höfum leyft okkur að leggja fram fyrir hönd Miðflokksins inn í þessa umræðu, sé hófsöm og varfærin. Ég vil segja við hv. þingmann, sem er nú hátt skrifaður lögfræðingur, hafandi verið formaður Lögmannafélagsins og með langa lögmannsreynslu, að við leituðum okkur að sjálfsögðu lögfræðilegrar ráðgjafar í þessu máli. Hún er á þá leið að við séum aðilar að samningi þar sem er 112. gr., sem sé hægt að virkja í þessu sambandi, hv. þingmaður og herra forseti, í krafti fullveldis íslensku þjóðarinnar. Við erum aðilar að þessum samningi sem fullvalda ríki, sem fullvalda þjóð (Forseti hringir.) og sem fullvalda þjóð getum við tekið upp viðræður af þessu tagi við okkar viðsemjendur. Við getum (Forseti hringir.) líka gert það án þess að bera einhvern sérstakan ótta í brjósti. Við erum fullvalda.