151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:54]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Auðvitað getum við þetta allt saman. Þetta er alltaf spurning um hagsmunamat. Þegar ég er að tala um að þjóðir noti venjulega hvort tveggja, tollvernd og beingreiðslur eða niðurgreiðslur og styrki, þá er ekki þar með sagt að við getum ekki gert betur að öðru leyti. Ég held að íslenskur landbúnaður eigi alveg ótrúlega möguleika, t.d. í markaðsstarfi. Við erum auðvitað með öðruvísi vöru eins og hv. þingmaður kom inn á, við erum með heilnæmari vöru og það kann að verða miklu betri markaður fyrir það innan tíðar og er kannski byrjað. Við þurfum að vera svolítið á tánum og reyna að nýta okkur stöðuna hverju sinni og möguleikana. Við megum ekki bara hugsa alltaf með okkur að við verðum að fá meiri beingreiðslur eða hærri skatta. Við verðum líka að vera á tánum. Það hefur orðið heilmikil hagræðing og menn hafa verið á tánum og það hefur verið nýsköpun í þessari grein en við verðum að passa að halda stöðunni þannig að þetta molni ekki undan okkur smátt og smátt. Ræða mín var eiginlega bara um það. Ég kem ekki hérna sem einhver frelsismaður sem segir: Það verður bara að vera frelsi og það er hagstætt fyrir neytendur. Við vitum alveg hvað gerist. Við vitum að við getum fengið þessa vöru miklu ódýrar annars staðar, frá Afríku, Asíu. (Gripið fram í.) Nei, en budda neytandans, það getur verið meira í henni.(ÓÍ: Mismunandi gæði.) Já. Ég er bara að segja: Stóra atriðið er það að við séum hér með matvælaframleiðslu og landbúnað sem er traustur og góður og stöndugur.