151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[18:56]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, úthlutun tollkvóta. Það er auðvitað að bera í bakkafullan lækinn að ég komi hingað á eftir þeim vökru mönnum og konum sem hér hafa talað um þetta mál lengi í dag. Þetta er forvitnileg umræða um stöðu bænda sem snýr að neyðarástandi. Á sama tíma og neysla dregst saman vegna Covid heldur innflutningur áfram eins og enginn sé morgundagurinn. Það virðist sem öll minnkunin á markaði og það sem er til sölu í búðunum komi niður á íslenskum bændum. Það er sú upplifun sem maður sér og heyrir. Birgðirnar hlaðast upp í frystigeymslunum og á fæti í húsunum. Það er mjög alvarlegt. Það tekur auðvitað langan tíma að ala dýr og koma þeim á markað og þegar það er dregið undan er fátt til ráða. Ég held, og þá er ég ekki að undanskilja mig, að okkur skorti kjark til að taka alvarlega á þessum málum.

Með frumvarpinu erum við að bregðast við neyðarástandi. Það má auðvitað alveg segja að gangi megi lengra og það er mín tilfinning, ég hefði viljað ganga miklu lengra en þetta frumvarp gerir þó að ég styðji það heils hugar að lokum. En ég hefði sannarlega viljað ganga lengra. Mér er líka umhugað um afkomu bænda þegar maður sér það á samanburðargrafi að neysluvísir kjötverðs og neysluverðs fer langt upp í loftið á sama tíma og hlutur bænda fer niður í gólf. Þetta er það sem íslenskir bændur hafa búið við allt of lengi. Þetta er staða sem er hluti af þeim vanda sem nú blasir við. Neysluvísitala í Evrópu er hæst í Sviss og svo kemur Noregur á eftir og Íslendingar eru í þriðja sæti, en þeir búa við langlægsta afurðaverðið til bænda, lægra en nokkur önnur þjóð í Evrópu býr við.

Svo finnst mér, virðulegur forseti, að hér sé mest talað um langtímaframtíð fyrir bændur þegar bændur eru að reyna að kalla á brunaliðið. Það er eins og síminn sé á tali. Brunaliðið er alltaf að tala um innflutning frá Evrópusambandinu og eitthvert nýtt styrkjafyrirkomulag en á því svæði, eins og hér hefur komið fram í mörgum ræðum, tekur Evrópusambandið utan um bændur sína, brýtur alla samninga og gildi samstarfsins sem þar byggist allt á. Það eru alla vega upplýsingarnar sem við höfum. Ég held að ef það verður ekki hugarfarsbreyting hjá þingi og þjóð gagnvart bændum þá skipti engu máli hvort brunaliðið svari eða ekki. Það þarf að tryggja afkomu bænda. Það þarf skilning á því í þessu samfélagi að þessi frábæra afurð sem íslenskir bændur framleiða er auðvitað dýr í landi þar sem laun og kaupmáttur er með því alhæsta sem gerist í heiminum. Það er einkennilegt að bændur hafa talað um að það væri jafnvel ódýrara að senda sláturafurðir til Evrópulanda og láta vinna þær þar og senda svo aftur til Íslands, það væri ekki dýrara en að vinna þær hérna heima. Það er svolítið í þjóðarsál Íslendinga að vilja svissneskt og norskt launakerfi en grískt verðlag. Það er alltaf hugsunin hjá okkur.

Síðar flytjum við inn kjöt eins og enginn sé morgundagurinn. Hvað hafa neytendur á Íslandi grætt á því? Ég spyr stundum að því þegar hingað í þingið koma fulltrúar innflytjenda: Hvar sjáum við þess merki að íslenskir neytendur njóti sérstaklega núna jafnvægisútboðsins? Því var komið á með lagabreytingu á sínum tíma sem gerð var þegar hér var allt í uppgangi og 2 milljónir ferðamanna komu til landsins og breyttu öllu í neysluvenjum og framboði í þessu landi, þá fór allt út um víðan völl. Það er einhvern veginn, virðulegur forseti, eins og hér sé ekki heimsfaraldur, hann sé bara í útlöndum.

Okkur skortir kjark til að taka á þessum málum og ég spyr: Hvaða þjóð vill ekki eiga landbúnað eins og Íslendingar búa við þegar allt snýst um hreinlæti, endurnýjun, endurnýjanlega orku og heilnæmi vörunnar? Ég er hræddur um að skólamaturinn yrði eitthvað öðruvísi ef við hefðum ekki þessi frábæra vöru sem börnin geta neytt. Við þurfum að grípa til aðgerða og leggjast síðan yfir framtíðina, hvernig við getum gert bændum kleift að lifa bærilegu lífi í þessu landi. Það er ekki nokkur þjóð sem vill taka áhættu þannig að fæðuöryggi hennar sé ógnað. Það vill engin þjóð, ekki nokkur þjóð. En við erum svolítið að leika okkur að þeirri hættu, Íslendingar. Við skulum ekki gera það. Snúum vörn í sókn fyrir bændur þessa lands, kaupum vöru þeirra og látum það ekki gerast að vegna afkomubrests þurfi þeir að hætta en verslunin haldi áfram að flytja inn ógrynni af vöru sem er í engu ódýrari, sem neinu nemur, og kemur íslenskum neytendum ekki sérstaklega til góða.

Virðulegur forseti. Ég segi bara í lokin: Það er von mín að við hér á þingi munum eins fljótt og hægt er bregðast við þeim vanda sem ríkir hjá bændum, bæta hag þeirra og búa svo um að framtíð þeirra verði tryggð.