151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[19:05]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það hefur margt ágætt komið fram hér í umræðunni það sem af er degi, svo sem margt sömuleiðis sem er heldur síðra. Það sem mig langar kannski að byrja ræðu mína á er orð sem hv. þm. Haraldur Benediktsson notaði í framsöguræðu sinni en orðið var úrræðaleysi. Því miður er margt til í þessum orðum hv. þm. Haralds Benediktssonar. Í umhverfi landbúnaðar á Íslandi hefur um allnokkuð langan tíma ríkt nokkurt úrræðaleysi hvað varðar aðgerðir og lausnir og þróun og utanumhald. Kannski er það að einhverju marki vegna þess að pólitíska sviðið, Alþingi og þeir sem vinna í því umhverfi hafa annaðhvort ekki kjark eða stuðning til að byrja vegferðina hverju sinni á því að segja: Nú ætlum við að gera það sem þarf til þess að innlendur landbúnaður geti orðið burðugur, þróast, verið nægjanlega öflugur til að sinna vöruþróun og öðru slíku og alltaf með þann undirliggjandi grunn að bændur geti lifað mannsæmandi lífi á því starfi sem þeir hafa valið sér, þessir vörslumenn landsins. Mig langar að þakka hv. þm. Haraldi Benediktssyni fyrir að hafa notað þetta hugtak. Ég held að það sé ágætt til að draga okkur á þann stað sem við þurfum raunverulega á að halda að vera á. Þegar kemur að því að meta aðgerðir og næstu skref og hvernig við viljum halda á þessum málum hér á landi verðum við að komast út úr þessu fari úrræðaleysis.

Hv. þm. Brynjar Níelsson hélt prýðisræðu hér áðan, afspyrnugóða satt best að segja, sem ég hvet þá sem ekki heyrðu til að hlusta á. Hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni að hann hefði í sjálfu sér ekki djúpa þekkingu á landbúnaðinum og fæstir okkar þingmanna höfum það í sjálfu sér. En hann nálgaðist málið út frá prinsippi og prinsippið var það að hér á landi gæti þróast og verið burðugur landbúnaður, hér á þessu landi þar sem ég leyfi mér að fullyrða að við framleiðum hreinustu og bestu landbúnaðarafurðir í heimi. Þetta ber aftur að þeim sama brunni og á að hjálpa okkur að því marki að hætta að nálgast mál landbúnaðarins út frá úrræðaleysi heldur af sjálfstrausti og tiltrú á það að landbúnaðurinn okkar sé besti landbúnaður í heimi hvað varðar gæði, lyfjaleysi og annað slíkt og að hann hafi alla burði til að vaxa og dafna og margfaldast að umfangi og verðmætasköpun á sama tíma og við höldum í heilnæmið.

Nágrannalönd okkar, öll þau lönd sem við berum okkur saman við, eru að grípa til aðgerða fyrir landbúnaðinn núna. Það ástand sem uppi er, þetta Covid-ástand, er ekkert séríslenskt. Þjóðir eru að grípa til aðgerða til varnar landbúnaði sínum alls staðar í kringum okkur, í öllum samanburðarlöndum. Ég bið bara hv. þingmenn sem hér eru að leiðrétta mig ef svo er ekki í einhverjum tilfella en ég leyfi mér að fullyrða að það er alls staðar verið að grípa til aðgerða til að verja innlendan landbúnað. Það eigum við að gera af miklu meira afli hér heldur en við höfum gert hingað til. Í þessu eru tvær meginleiðir færar, það er tollverndin og það eru beingreiðslur. Það er oft eins og umræðan hér í þingsal hverfist um að það sé eitthvert séríslenskt fyrirbæri að landbúnaðarvörur séu tollaðar. Ekkert er fjær lagi. Tollar eru auðvitað fyrst og fremst nýttir til að verja innlendan landbúnað hjá öllum þeim þjóðum sem við berum okkur saman við. Við eigum að gera þetta alveg kinnroðalaust. Við eigum að verja íslenskan landbúnað með þessum hætti því að okkur ber skylda til að hugsa þetta til lengri tíma. Ef skaðinn er orðinn og landbúnaðurinn verður algjörlega að fótum fram kominn þá verður viðspyrnan mjög lítil og lin.

Fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, kom í ræðu áðan. Það hljómaði eins og hv. þingmaður hefði aldrei verið landbúnaðarráðherra sem hún sannarlega var í einni skammlífustu ef ekki skammlífustu ríkisstjórn lýðveldissögunnar. En það breytir því þó ekki að á því tæpa ári sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafði til að leggja til eitthvað af því sem þingflokkur Viðreisnar leggur nú til þá var ekkert slíkt gert. Þetta er allt einhver sýndarmennska núna.

Hv. þm. Birgir Ármannsson var með ágætisræðu áðan sem í rauninni dró fram, og var athyglisverð að því leyti, að það virðist vera klofningur í þingflokki Sjálfstæðisflokksins varðandi með hvaða hætti sé rétt að nálgast það mál sem hér liggur fyrir. En það sem mig langaði að draga fram úr ræðu hv. þingmanns er að hann lagði áherslu á að frelsi í viðskiptum væri af hinu góða og við ættum að ýta undir það sem mest við megum til að stuðla að hagsæld og farsæld íslensks samfélags. Ég er í öllum meginatriðum sammála hv. þm. Birgi Ármannssyni um þetta. Það er þó þannig að á Íslandi, rétt eins og í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við, gilda sérstök sjónarmið hvað varðar landbúnaðinn og innlendra matvælaframleiðslu. Þau sjónarmið veit ég að hv. þm. Birgir Ármannsson þekkir og það hefur eflaust verið meiningin í orðum hv. þingmanns.

Ég vísa aftur í orð formanns Sjálfstæðisflokksins, hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar, í umræðu um viðskiptasamninga þar sem hann lagði áherslu á að það yrði að vera gagnkvæmni í samningunum. Út frá því langar mig til að velta því upp hvort gagnkvæmnin í þessum tollasamningi, í þessum viðskiptasamningi við Evrópusambandið, sé raunveruleg og sett fram með skynsamlegum og sanngjörnum hætti. Er eitthvert jafnræði í því að það sé sama útflutningsheimild inn á 500.000.000 manna markað fyrir okkur Íslendinga eins og fyrir þann risamarkað inn á okkar 360.000 manna örmarkað? Telja menn almennt að í því sé sanngjarnt jafnræði og gagnkvæmni? Telja menn að Brexit, brotthvarf Breta úr Evrópusambandinu, hafi engin áhrif á gagnkvæmnina eða sanngirnina í þessu máli? Auðvitað verðum við að nálgast þetta út frá þeim forsendum sem liggja fyrir í dag. Þær eru alls ekki þær að skynsamlegt sé að samningurinn haldi eins og hann liggur fyrir því að hann er afspyrnuvondur fyrir innlendan landbúnað, alveg afspyrnuvondur. Við eigum að fara skynsamlegar leiðir í því að losa okkur undan og út úr þessu regluverki.

Það er nauðsynlegt að koma inn á það sem hefur verið rætt aðeins og snýr að verði innlendra landbúnaðarvara. Í hagfræðinni er hugtak, PPP, „purchasing power parity“ með leyfi forseta, sem myndi útleggjast á íslensku sem einhvers lags jafnlaunaeining þar sem er reynt að leggja að jöfnu að leiðrétta fyrir raunlaunum á hverju svæði og leiðrétta vöruverð með tilliti til þess. Það er auðvitað algerlega fráleitt að láta sér detta það í hug að eitthvað annað eigi við um landbúnaðarvörur en aðrar vörur í þeim efnum. Mig langar að taka sem dæmi að Alþýðusamband Íslands hefur undanfarin ár staðið í töluverðri húsnæðisuppbyggingu í gegnum Bjarg íbúðafélag. Hvernig byrjaði það? Fyrstu fasteignirnar sem Bjarg íbúðafélag, leigufélag ASÍ, byggði voru úr innfluttum timbureiningum. Ég hef engar athugasemdir við það en það breytir því ekki að ástæðan fyrir því að þau hús voru byggð úr innfluttum timbureiningum var að innlend framleiðsla réð ekki við að byggja upp þau hús sem Bjarg vildi byggja af því að launin hér voru auðvitað miklu hærri heldur en í því landi sem timbureiningarnar komu frá. Ég held að það hafi verið Eistland í þessu tilviki.

Menn eru mjög hissa á því að flugmiðinn með Icelandair sé á köflum svolítið dýrari en flugmiðinn með Wizz Air á ákveðnum flugleiðum en gera ekkert með það að launakjör starfsmanna Icelandair eru með allt öðrum hætti en starfsmanna Wizz Air. Þessa hugsun verðum við, og það er eiginlega alveg ótrúlegt hvað það hefur gengið illa, að yfirfæra á innlendan landbúnað. Í eðli sínu eru nákvæmlega sömu lögmál þar verki: Kostnaður við innlenda íslenska heilnæma landbúnaðarframleiðslu er einfaldlega hærri en á landbúnaðarbúum í hinni stóru Evrópu.

Mig langar í nokkrum orðum að koma inn á sjónarmið sem hafa verið nefnd fyrr í umræðunni er varða 112. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið. Það snýr að sjónarmiðum um að fresta útdeilingu þeirra tollkvóta sem nú er ætlunin að ganga til. Mig langar að lesa stuttlega upp úr 112. gr. og eina málsgrein upp úr 113. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið. Í 112. gr. segir, með leyfi forseta:

„Ef upp eru að koma alvarlegir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum, sem líklegt er að verði viðvarandi, getur samningsaðili gripið einhliða til viðeigandi ráðstafana með þeim skilyrðum og á þann hátt sem mælt er fyrir um í 113. gr.

Slíkar öryggisráðstafanir skulu vera takmarkaðar, að því er varðar umfang og gildistíma, við það sem telst bráðnauðsynlegt til þess að ráða bót á ástandinu. Þær ráðstafanir skulu helst gerðar sem raska minnst framkvæmd samnings þessa.“

Síðan segir hér áfram í 4. mgr. 113. gr., með leyfi forseta:

„Hlutaðeigandi samningsaðili skal án tafar tilkynna ráðstafanirnar, sem gerðar hafa verið, til sameiginlegu EES-nefndarinnar og veita allar nauðsynlegar upplýsingar.“

Það liggur því einfaldlega fyrir að leiðin til að fresta þessu tollaútboði er beinlínis skrifuð inn í lögin um Evrópska efnahagssvæðið. Við tókum hér umræðu, sem stjórnarflokkarnir tóku því miður ekki mikinn þátt í, um innleiðingu þriðja orkupakkans fyrir ekki löngu síðan þar sem skyndilega virtist vera að 102. gr. EES-samningsins væri fallin dauð að mati stjórnarliða. Ef 112. gr. og 113. gr. eru núna jafn dauðar í hugum stjórnarliða fer að verða þunnur þrettándinn. Þá fækkar þeim jafnt og þétt greinunum í EES-samningnum sem stjórnarliðar telja raunverulega virka. Þá fyrst byrjar hann að molna innan frá ef það á bara að pikka út þær greinar sem eru okkar íslensku hagsmunum mótdrægastar. Þær eru í gildi. Þær skulum við allar innleiða og hantera og treysta og tryggja að við séum í því samhengi kaþólskari en páfinn, eins og stundum er sagt, en aldrei hafi verið ætlunin að allar þær greinar EES-samningsins sem reisa varnir fyrir íslenska hagsmuni hefðu neitt gildi. Okkur stendur ekki til boða að nálgast samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með þessum hætti. Þá fyrst eru þeir sem mest láta með mikilvægi þess umfangsmikla samnings að grafa undan honum sjálfir. Það er þá á þeirra ábyrgð.

Nú kynnu einhverjir að gagnrýna tilvísun í 112. gr. EES-samningsins en sú gagnrýni byggir á misskilningi. Ef ESB telur að notkun 112. gr. EES-samningsins sé ekki réttlætanleg, sem er reyndar hálfútilokað að ímynda sér miðað við hvað EES er að gera þessi misserin vegna kórónuveirufaraldursins, þá er málið tekið upp í sameiginlegu EES-nefndinni þar sem menn myndu reyna að finna lausn. Þarna er farvegurinn kominn sem voru allar forsendur til að vísa þriðja orkupakkanum inn í á grundvelli 102. gr. Hér er beinlínis skrifaður inn farvegur til að setja svona mál í hvað 112. gr. varðar. En nei, einhverra hluta vegna eru hagsmunirnir aðrir, að því er virðist, í hagsmunamati ríkisstjórnarinnar og því mótmæli ég harðlega.

Það má gera ráð fyrir að samningaviðræður í sameiginlegu EES-nefndinni yrðu Íslandi hagfelldar enda liggur fyrir af hálfu ESB að neyðarástand ríkir og auðvelt fyrir íslenska embættismenn að vísa til yfirlýsingar framkvæmdastjóra ESB um neyðarástand í evrópskum landbúnaði. Þetta er bara það sem er verið að óska eftir, að landbúnaðarráðherra nýti þær heimildir sem eru til staðar, og eftir atvikum utanríkisráðherra, til að verja þá íslensku hagsmuni sem eru svo æpandi augljósir núna. Það er búið að margfara inn á það mikla högg sem verður vegna fækkunar ferðamanna hér á landi vegna veirunnar. Það sama er auðvitað að gerast í löndunum í kringum okkur og það sem mun gerast á næstunni er að Ísland verður einhvers lags „dumping“-markaður, með leyfi forseta væri íslenska orðið væntanlega afsetningarmarkaður, að afsetja umframbirgðir, eða eitthvað þess háttar, fyrir erlenda framleiðendur sem eru auðvitað að vinna á allt öðrum skala heldur en við hér heima. Það mun reynast innlendum landbúnaði erfitt við að eiga og ekki víst að nein viðspyrna dugi ef því ástandi verður leyft að þróast án þess að spyrnt sé við fótum.

Mig langar í lok ræðu minnar að rifja upp viðtal við hæstv. utanríkisráðherra í Morgunblaðinu 18. nóvember, fyrir tæpum mánuði, sem er undir yfirskriftinni „Þurfa hugsanlega að endurskoða viðskiptakjör“. Þar ítrekar hæstv. utanríkisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, að ýmsar forsendur sem lagðar voru til grundvallar við gerð nýlegs samnings milli Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur hafi breyst frá gerð samningsins. Þannig hafi Bretar nú gengið úr ESB og sá markaðsaðgangur sem samið var um við sambandið nái því ekki lengur til Bretlands. Hér heldur síðan áfram í beinni tilvitnun í hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:

„Þá skiptir líka máli að vegna áhrifa heimsfaraldursins á komu ferðamanna til Íslands hefur dregið úr eftirspurn eftir landbúnaðarvörum hér á landi. Því þarf hugsanlega að kanna hvort ástæða sé til endurskoðunar á þeim viðskiptakjörum sem samningurinn kveður á um.“

Ágætu tilheyrendur. Allt ber þetta að sama brunni. Vandamálið liggur fyrir en lausnin gerir það sömuleiðis. Ef ákveðið er með galopin augun að nýta ekki þau tækifæri eða þær leiðir til varnar sem EES-samningurinn býður upp á verða þeir sem það ákveða að bera ábyrgð á því. Það mun enginn annar gera það. Það er algjörlega forkastanlegt ef það er ekki einu sinni umræðugrundvöllur fyrir því hér í þinginu að skoða af einhverri dýpt að fresta þeim hluta málsins sem snýr að tollkvótaúthlutuninni á meðan þetta kórónuveiruástand gengur yfir. Það liggur algerlega fyrir hvaða leið er fær til þess. Sjónarmið utanríkisráðherra frá því fyrir mánuði endurspegla að ekki er skilningur á þessu. Ég minni á prýðisræðu hv. þm. Brynjars Níelssonar hér fyrr í umræðunni. Jafnframt minni ég á, með vísan í ræðu hv. þm. Birgis Ármannssonar, að það verður að vera gagnkvæmni og sanngirni í samningum sem þessum og upp á það vantar mikið núna. Við þurfum að koma okkur út úr fari úrræðaleysis og gera það sem þarf til þess að íslenskur landbúnaður geti staðið í lappirnar og blómstrað.