151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[19:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir andsvarið. Mér sýnist ekkert benda til þess að 112. og 113. gr. séu force majeure-nálgun, eins og í hefðbundnum viðskiptasamningum. Er þá 102. gr. force majeure? Hversu margar eru þá force majeure-greinarnar í samningum um Evrópska efnahagssvæðið? Þetta er einfaldlega kanall og ekkert bendir til annars en að þegar samningurinn er gerður sé reiknað með því að hann sé nýttur. Þetta er ekkert kjarnorkusprengjuákvæði, þessi 112. gr. Í henni segir, með leyfi forseta:

„Ef upp eru að koma alvarlegir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum, sem líklegt er að verði viðvarandi, getur samningsaðili gripið einhliða til viðeigandi ráðstafana með þeim skilyrðum og á þann hátt sem mælt er fyrir um í 113. gr.“

Það er beinlínis sagt að ráðstafanir skuli vera takmarkaðar að því er varðar umfang og gildistíma. Þetta er ekki force majeure-ákvæði í slíku samhengi. Þetta er bara eðlilegur kanall. Ég myndi bara leyfa mér að segja að það væri ábyrgðarhluti að skoða það ekki í fullri alvöru af hendi ríkisstjórnarinnar að nýta þá leið sem er skrifuð inn í samninginn í byrjun. Einhverra hluta vegna var þetta skrifað þarna inn. Á sama tíma sjáum við að þjóðirnar í kringum okkur eru að grípa til aðgerða sem kalla mætti neyðaraðgerðir til varnar innlendum landbúnaði. Það var nú ekki beint spurning í þessu hjá hv. þingmanni, en þetta eru viðbrögð mín við andsvarinu.