151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[19:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég tel mig vita að hv. þingmaður hafi ekki heyrt alla ræðu mína. Er það ekki rétt? (HHG: Ég náði henni.) Þá hefur hv. þingmaður ekki veitt því athygli að það er alls ekki markmið mitt að fella niður alla tollvernd í landbúnaði, af því að spurningin endaði þar. En hvernig á að meta þetta? Það eru bara hlutlæg viðmið sem hægt er að setja. Það er reyndar ekkert í meðförum ríkisstjórnarinnar á Covid-ástandinu sem slíku sem bendir til þess að ríkisstjórninni eigi auðvelt með að segja: Ef við gerum þetta, þá gerist þetta, þannig að fyrirsjáanleiki sé í aðgerðum og viðbrögðum, en ég horfi á það sem er beinlínis skrifað í 113. gr. ESB hefur í yfirlýsingum sínum talið að neyðarástand ríki í málefnum bænda og samkvæmt 113. gr. eru málin tekin upp í sameiginlegu EES-nefndinni þar sem menn myndu reyna að finna lausn. Þetta er bara samningur og samtal sem á sér stað innan sameiginlegu EES-nefndarinnar komi til þess að 112. gr. sé beitt í þessu samhengi. Ég hef í sjálfu sér sáralitlar áhyggjur af því að þetta verði vandamál, að skilgreina hvenær sú staða er komin upp að hægt sé að stíga til baka hvað varðar þá hóflegu aðgerð sem við Miðflokksmenn leggjum til í breytingartillögu við málið. Af því að hv. þingmaður spurði hvenær myndi landbúnaðurinn vaxa og blómstra á grundvelli þeirrar ákvörðunar sem við leggjum til þá held ég að hann muni ekki vaxa og blómstra á grundvelli hennar en ákveðnir þættir (Forseti hringir.) hans munu síður deyja, eða verða komnir að fótum fram, ef þessari tollkvótaúthlutun verður frestað.