151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[19:35]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að byrja á að leiðrétta sjálfan mig í lokaorðum mínum í andsvörum við hv. þingmann. Ég sagði alla tollvernd, en auðvitað er enginn að leggja það til og vissulega ekki hv. þingmaður Miðflokksins, svo mikið er ljóst, svo því sé haldið til haga.

Ég er sjálfur á móti þessu máli. Ég tel það vonda lausn við mjög raunverulegu vandamáli. Það er óumdeilt að landbúnaðurinn á við mikil vandamál að stríða í kjölfar heimsfaraldursins eins og margar aðrar stéttir og það ber að taka alvarlega og það er alvarlegt. Í allri umræðu um landbúnaðinn almennt koma stundum fram þau sjónarmið að við ættum í raun og veru ekki að vernda landbúnaðinn sérstaklega, að við ættum bara að hafa engan sérstakan stuðning og enga sérstaka vernd, eða það er alla vega skilningur minn á sumum ræðum. Ég er ekki á þeirri línu og veit um afskaplega fáa sem myndu standa hér og vera á þeirri línu. Það er óumdeilt, eftir því sem ég fæ best séð, að við eigum að styðja landbúnaðinn. Það er óumdeilt þegar kemur að þessu máli. Byrjum bara á því að halda því til haga. Það er bara staðreynd. Ég tel að það sé staðreynd að þingmenn vilji allir styðja landbúnaðinn eins og ég sagði. En hvernig? Þýðir það að allt sem okkur dettur í hug, allt sem við erum vön, sé góð hugmynd? Nei, auðvitað ekki, að sjálfsögðu ekki. Það held ég að flestir þingmenn sjái alveg einnig.

Í gegnum tíðina hefur verið ágreiningur um það hvernig eigi að haga tollvernd á Íslandi og við höfum nýlega sett upp kerfi sem hér er lagt til að verði dregið til baka, tímabundið, í einhver ár, til að vernda landbúnaðinn í stuttu máli fyrir samkeppni frá innfluttum landbúnaðarafurðum. Ég skil alveg það sjónarmið. Ég skil það mætavel. Það er engin sérstök ráðgáta fólgin í því að mínu mati. Ég ber fulla virðingu fyrir því að sumir telji það nauðsynlegt, að það sé rétta leiðin, en ég er ósammála því. Eins og kom fram í ræðu hv. þm. Brynjars Níelssonar áðan eru í meginatriðum tvær leiðir til að styðja landbúnaðinn, önnur er einhvers konar beingreiðslur, einhvers konar greiðslur til aðilanna þar innan, og hin er tollvernd. Ég get alveg fallist á það í megindráttum. Eflaust eru til einhverjar aðrar hugmyndir sem ég hef ekki heyrt um en gefum okkur bara þessar tvær í bili. Þá eigum við að taka beingreiðslurnar, þá eigum við að styðja landbúnaðinn með greiðslum, með stuðningi, við eigum að beita tollvernd af því allra mesta hófi sem okkur er á nokkurn hátt fært vegna þess að tollvernd hefur líka neikvæðar afleiðingar, líka fyrir fólk innan landbúnaðarins sjálfs. Tollvernd dregur úr nýsköpun og nýsköpun er ekki einhver munaður. Við þurfum nýsköpun, við búum í heimi sem breytist og þróast. Það er stundum sársaukafullt, en það þarf að gerast og við þurfum að hafa okkar kerfi þannig að nýsköpun þróist og nýtist sem best. Það þýðir ekki að fólki sé sama um landbúnaðinn eða hvern þann iðnað þar sem við viljum að sjálfsögðu sjá meiri nýsköpun.

Annað sem er slæmt við tollverndina, á það hefur verið bent hér aftur og aftur í dag, er að tollvernd hefur tilhneigingu til þess að lengja efnahagsáföll, að draga þau á langinn. Það er ekki ný hugmynd að setja upp tollvernd, hún er þaulreynd mjög víða, hefur verið prófuð margoft og alveg hægt að rannsaka afleiðingarnar af henni. Samkvæmt þeim gögnum sem við höfum fengið eru afleiðingarnar þær að hún lengir áfallið. Það er ekki gott fyrir landbúnaðinn, það er ekki gott fyrir Ísland. Það er slæmt fyrir landbúnaðinn og það er slæmt fyrir Ísland þannig að með þeirri orðræðu er ekki að verið að hunsa hagsmuni eins eða neins. Þetta er bara ein af hliðarverkunum lausnarinnar sem er lögð til og þessi hliðarverkun er slæm, hræðilegra og ómálefnalegra er það nú ekki.

En talandi um hræðilega og ómálefnalega hluti þá kviknar í þessu máli, eins og svo oft þegar eitthvað sem varðar EES eða ESB ber á góma, ákveðin orðræða sem snýr einhvern veginn að því að hagsmunir okkar gagnvart því að halda samninga okkar í góðri trú og halda þá þannig að við séum einnig að hugsa um hagsmuni samningsaðilans í þeirri viðleitni að samningsaðilinn hugsi um hagsmuni okkar, sem eru hagsmunir okkar. Þá er búin til togstreita milli Íslands og EES-samstarfsins sem mér fer að finnast ansi þreytt og sér í lagi hvernig hv. þingmenn Miðflokksins tönnlast á því að tilteknar greinar sem eru neyðarúrræði í samningnum sjálfum séu einhvern veginn lausnir sem hægt er að beita bara sisvona. Núna er raunverulegt neyðarástand en þeir töluðu líka svona um þriðja orkupakkann og hvað varð um hann? Það er nú önnur umræða, vonandi. Búin er til þessi hugmynd um það að ef við beitum ekki neyðarúrræðum, bara vegna þess að við sjáum að það gæti hentað okkur, grafi það einhvern veginn undan samningnum. Nei, virðulegi forseti, sú orðræða grefur undan samningnum. Mér sýnist hv. þingmönnum Miðflokksins einfaldlega vera sama um það, með þeim fyrirvara að ég tala að sjálfsögðu ekki fyrir þá, heldur betur ekki.

Hvað varðar það neyðarástand sem við erum stödd í núna liggur líka fyrir að við vitum ekki nákvæmlega hversu lengi þau efnahagsáhrif munu vara. Ef það er eitthvað sem hagfræðingar tönnlast á þegar þeir reyna að skýra frá hinum ýmsu sviðsmyndum sem eru mögulegar á komandi misserum og árum er það óvissan. Það er svo margt sem við vitum ekki, og vitum að við vitum ekki, um það hvernig hagkerfið okkar muni þróast á næstu misserum og árum. Það eitt og sér er slæmt en það er þannig. Í ljósi þess finnst mér þessi aðferð einnig slæm vegna þess að hvenær svo sem hagkerfið fer að taka við sér, og flestir virðast reyndar sammála um að það taki einhver ár, þá þurfum við aftur að fara að spyrja hversu mikið við getum dregið úr tollverndinni. Þá erum við bara komin aftur á þann stað. Það er mjög erfitt samtal, það er nógu erfitt samtal fyrir Íslendinga sín á milli, hvað þá ef við erum að semja við ESB eða EES eða tilheyrandi aðila um það hvenær sé hægt að aflétta tollverndinni hjá okkur. Ég get rétt ímyndað mér hvernig orðræðan hér í þingsal verður undir þeim kringumstæðum, a.m.k. ef Miðflokkurinn er enn á þingi á þeim tíma. Þá er það alltaf við á móti þeim, alltaf vonda ESB sem vill að við séum með frjálsan markað og samkeppni en við hérna að reyna að vernda íslenska hagsmuni gegn erlendum hagsmunum. Þannig lítur það dæmi út. Það eitt og sér er líka neikvæð afleiðing. Þá myndast togstreita. Það að afnema tollvernd, auðvitað og eðlilega, þýðir að markaðir þurfa að breytast og aftur, það er ekkert endilega sársaukalaust eða sanngjarnt. En þess þá heldur eigum við ekki að koma okkur í þá klípu að við höfum búið til eitthvert kerfi sem hindrar samkeppni og dregur úr nýsköpun og lengir kreppur sem við eigum erfitt með að losna við. Nær væri að beita einhvers konar beinni íhlutun af einhverju tagi, mér finnst það gegnsærra, skýrara og mælanlegra og það hefur ekki þessi hrikalegu kerfisáhrif sem tollverndin hefur óhjákvæmilega, eftir því sem best er vitað.

Fyrst ég hef aðeins meiri tíma þá þarf ég líka aðeins að tala um kjark. Nokkrum sinnum í umræðunni í dag hef ég heyrt þingmenn tala um að hafa þurfi kjark og ég heyri þá orðræðu mjög gjarnan þegar reynt er að setja Ísland upp á móti Evrópusambandinu eða EES. Eins og ég nefndi í andsvari við hv. þm. Miðflokksins áðan, Bergþór Ólason, breytir kjarkur og hugrekki ekki vondri hugmynd í góða. Persónulega finnst mér engan kjark vantar hér á Alþingi almennt. Ef eitthvað er finnst mér aðeins of mikið af honum stundum vegna þess að þegar hann tekur fram úr hugsuninni leiðir hann til mun verri afleiðinga en ella þannig að ég kannast ekki við þetta kjarkleysi eða það hugleysi sem á að vera hér ríkjandi. Fólk er bara ósammála um það hvaða leið sé skynsamlegust. Ég tek hins vegar mjög mikið eftir hugsunarleysi og skeytingarleysi gagnvart staðreyndum, gögnum og þekkingu almennt. Það endurspeglar hvernig samfélagi við búum í, við manneskjurnar fæðumst ekki sem vísindamenn og við fæðumst ekki þrautþjálfuð í gagnaöflun, úrvinnslu gagna, eða virkri hlustun ef út í það er farið, þannig að það ætti ekki að koma á óvart.

Kjarktalið finnst mér líka endurspegla þá hugmynd að við þurfum einhvern veginn að hafa kjarkinn sem litla landið gegn stóru öflunum. Sú mynd finnst mér svo þreytandi þegar kemur að svona hugmyndum og svona ákvörðunum. Þetta snýst um það hvað er skynsamlegt fyrir íslenska hagsmuni. Um það er enginn ágreiningur. Sumir þingmenn hafa þá flugu í höfðinu, þar á meðal sá sem hér stendur, að samstarf sé gott, að manneskjur nái almennt meiri árangri saman en aðskildar. Það ætti ekki að þykja svo róttæk hugmynd fyrir neinn sem hefur unnið með hópi af fólki við að reyna að ná einhverju markmiði. Þetta er frekar augljóst ef maður pælir aðeins í því og jafnvel þótt maður pæli bara mjög lítið í því. En það er einhvern veginn þannig að hugmyndin um innhóp og úthóp á mjög djúpar rætur í mannssálinni, væntanlega vegna þess að í hundruð milljóna ára eða hvað eina byggðum við afkomu okkar á mun frumstæðari aðstæðum en við búum við í dag og þess vegna höfum við þessar frumstæðu tilfinningar og hvatir, t.d. þá að setja okkur sífellt í einhvern innhóp og úthóp og ætla síðan að fara að mála okkur sjálf upp sem hetju innhópsins gegn hinum vonda og útlenda úthópi. Hér er auðvitað kannski smá rassvasasálfræði á ferð, eins og góður vinur minn kallar það, svo má vera, en svona birtist þetta alla vega fyrir mér.

Í nefndaráliti meiri hlutans er nefnt að ekki sé ljóst að þessi aðferð hafi áhrif á verð til neytenda. Ég er ósammála því. Ég tel það mjög augljóst. Bæði er reynslan af breyttu kerfi sú að neytendaverð hefur lækkað og vöruúrval aukist þannig að með því að setja aftur á gamla kerfið er alveg við því að búast að það fari aftur í sama horfið. Það er alla vega vísbending um það. Mér finnst ákveðin afneitun fólgin í því að ætla að það sé á einhvern hátt ekki ljóst. Sömuleiðis finnst mér ekki nógu góður gaumur gefinn að því hvers vegna nákvæmlega við viljum vernda landbúnað. Sumir koma hingað í pontu til að reyna að fá atkvæði bænda. Ég er ekki að því eins og hefur komið fram og ætla ekki að bjóða mig fram næst þannig að ég er ekki að leita atkvæða frá neinum og enginn þarf að kjósa mig næst og enginn fær að gera það, en það er mjög raunveruleg ástæða fyrir því að við viljum hafa landbúnað í þessu landi. Hún er mataröryggi, sem í dag er að mínu mati ekki alveg nógu gott. Síðast þegar ég vissi var það í kringum 50%, þ.e. við gætum nært hálfa þjóðina ef allar samskiptalínur við útlönd dyttu niður, sem ekkert bendir til að verði eins og er en það er mælieiningin sem er oft notuð í umræðunni. Mataröryggi er fyrir mér ákveðið grundvallaratriði, reyndar algjört grundvallaratriði, og mætti vera betra og mér finnst við þurfa mjög mikla nýsköpun og mjög mikið af nýrri hugsun til þess að koma því upp aftur. Þar er ýmislegt. Margir nefna, með réttu tel ég, aukna grænmetisframleiðslu sem ég tel mjög jákvætt að við myndum auka. Kjötræktun er nýtt fyrirbæri sem er nú verið að prófa á markaði í Ísrael, það þótti nú hin furðulegasta hugmynd fyrir aðeins örfáum árum. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson hefur hér hneykslað suman ráðherrann með tali um það, en það er að koma, kjötræktun mun koma, þ.e. ræktað kjöt, tæknin er til. Núna er hún aðallega spurning um að draga úr kostnaði og auka framleiðslugetuna þannig að hún geti tekið við af hefðbundnum landbúnaði. Það er ekki víst að það takist sisvona. Það er ekki víst að það gerist á næstunni en það mun gerast fyrr eða síðar, verðum við að gera ráð fyrir. Alls konar breytingar eru í farvatninu þegar kemur að matargerð, þó ekki væri nema einfaldlega út af loftslagsbreytingum, hvað þá tæknibreytingum samhliða þeim.

Með hliðsjón af því þykir mér eðlilegt að ríkissjóður, með því að rukka skatta, styrki landbúnaðinn með ýmsum hætti en helst með einföldum hætti og helst þannig að aðilar innan landbúnaðarins geti sjálfir valið hvað þeir gera frekar en að skilgreina fyrir fram að við ætlum að hafa þetta kjöt og þetta kjöt og þessa vöru og þessa þjónustu, frekar ætti að leyfa bændum að prófa sig áfram með eitthvað nýtt. En ég tel það alla vega algerlega réttlætanlegt að ríkissjóður styrki landbúnað með einhverjum hætti. Mér er illa við að það gerist á kostnað samkeppni og nýsköpunar og þess að draga úr áhrifum efnahagsáfalla eins og þeirra sem núna dynja yfir. Nú er rétt að geta þess að með tollvernd er það í rauninni ekkert minni skattlagning, þótt sumir teygi reyndar hugtakið aðeins um of. Það sem ég á við er að verðhækkunin, eða það sem borgarinn þarf að greiða meira, birtist einfaldlega í hærra vöruverði í stað þess að birtast á skattskýrslunni. Ég veit að hér á bæ, talandi um kjark og þor og allt það, eru margir sem vilja kannski síður beita skattkerfinu til að fjármagna innviði eins og landbúnaðinn vegna þess að þeir eru hræddir við að hækka skatta. Þeir eru hins vegar ekkert endilega jafn hræddir við að hækka vöruverð vegna þess að ríkisstjórninni verður ekki kennt um það. Það er ekki það sem neytandinn hugsar þegar hann sér hærra vöruverð, alla vega mun fjær því. Hann hugsar kannski meira um það þegar hann sér að hann fær minna útborgað vegna meiri skattheimtu. Það er svo sem alveg skiljanlegt. En það breytir því ekki að á endanum þarf þessi stuðningur við landbúnaðinn, sem ég heyri engan ágreining um að sé nauðsynlegur, að koma úr vösum landsmanna, enda skiptir máli hvernig, með hvaða hætti, með hvaða afleiðingum, hvernig kerfið virkar sem nær í þá peninga, á hvaða forsendum það kerfi nær í þá peninga og hvernig þeim er dreift og hvaða áhrif það hefur á markaðinn, hvaða áhrif það hefur á hagkerfið til lengri tíma og hvaða áhrif það hefur á nýsköpun og samkeppni.

Ég ætla að ljúka þessu hér, virðulegi forseti. Eins og er kannski ljóst greiði ég atkvæði gegn þessu máli og mun greiða atkvæði gegn breytingartillögu Miðflokksins og hallast að því að greiða atkvæði með tillögu hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem felur í sér einskiptisgreiðslu til bænda vegna tekjutaps á árinu 2020 af völdum heimsfaraldurs. Það er mjög skýr leið, mjög einföld leið, mjög gegnsæ leið, sem er auðvelt að hafa fyrirsjáanlega til einskiptis þannig að það þurfi ekki að hafa einhver kerfislæg áhrif fram í tímann sem síðan þarf að taka til baka, tala nú ekki um ef við þurfum síðan að rífast um það við erlenda aðila frekar en okkur sjálf. Nógu erfitt er það hér heima að reyna að afnema tollvernd og þess háttar. En núna skal ég ljúka máli mínu, virðulegi forseti, og sé til hvað kemur út úr áframhaldandi umræðu um málið.