búvörulög.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp um breytingu á búvörulögum. Með frumvarpinu er eldra útboðsfyrirkomulag tollkvóta endurvakið tímabundið í ljósi erfiðra aðstæðna sem ríkja á markaði vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Meginmarkmið frumvarpsins er að lágmarka áhrif faraldursins á innlenda framleiðslu landbúnaðarafurða. Nú um síðustu áramót var komið á jafnvægisútboði vegna úthlutunar tollkvóta á landbúnaðarvörum hér á landi. Fyrirkomulagið var lagt til eftir tillögur starfshóps um úthlutun tollkvóta landbúnaðarvara. Þær breytingar sem þá urðu áttu að stuðla að ábata fyrir neytendur og einnig að draga úr kostnaði þeirra sem fengju úthlutað tollkvóta, í ljósi samninga milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur frá 17. september 2015 sem tóku gildi 1. maí 2018. Með samningunum voru tollkvótar fyrir landbúnaðarvörur auknir til muna. Á mannamáli var stóraukinn innflutningur á landbúnaðarvörum heimilaður hingað til lands frá Evrópulöndum.
Frú forseti. Nú ríkja eins og kunnugt er allt aðrar aðstæður. Ferðamannastraumurinn er horfinn og eftirspurn eftir matvælum hefur auðvitað minnkað mikið þess vegna. Eftirspurn eftir landbúnaðarvörum hefur dregist mikið saman, ekki aðeins vegna fækkunar ferðamanna heldur einnig vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda. Sala á kjöti hefur dregist saman um tæp 10% nú í haust og herma fregnir að kjötbirgðir hrannist upp og er þar bæði átt við kjötbirgðir í geymslum en einnig búfé á fæti hjá bændum. Þá hefur einnig verið mikill samdráttur í sölu mjólkurafurða. Samt sem áður, frú forseti, hefur innflutningur á landbúnaðarvörum haldist allan þennan tíma, allt frá því að faraldurinn hófst fyrir réttum níu mánuðum síðan. Það hefur valdið miklum búsifjum meðal framleiðenda landbúnaðarvara sem er íslensk bændastétt.
Þegar rætt er um innflutning á landbúnaðarvörum verður að taka mið af því að landbúnaðarvörur í Evrópu eru framleiddar við allt önnur skilyrði en hér á landi, bæði allt aðrar aðstæður, önnur og oft mun lægri laun verkafólks og oft og tíðum allt annan aðbúnað launafólks, svo ekki sé talað um umhirðu dýranna og notkun ýmissa lyfja bæði til að auka afköst dýranna og ekki síður til að berjast við þá sjúkdóma sem þar er við að etja. En það er önnur saga og ansi hreint löng að segja frá því. Þá er ekki langt síðan kom í ljós að tollframkvæmd þegar kemur að innflutningi landbúnaðarvara hingað til lands samkvæmt þessum áðurnefnda samningi hefur verið brotakennd, eins og segir í nefndaráliti. Óhætt er að taka undir þau orð. Svo sannarlega virðast hafa verið alvarlegir misbrestir þegar kemur að tollafgreiðslu margra þessara landbúnaðarvara þegar þær eru fluttar hingað frá Evrópulöndum. Það er þó ekki ástæða þessa frumvarps eða viðbragða stjórnvalda þó að margt megi um tollframkvæmdina segja. Þar hef ég aðallega bent á að eftirlit með slíkum innflutningi verður að standast þær kröfur sem eðlilegt er að gera til innflutnings á landbúnaðarvörum sem koma frá svæðum sem hafa búið við sjúkdóma sem við höfum blessunarlega verið laus við um árhundruð. Þeir gætu, ef þeir bærust hingað, reynst okkur ærið dýrkeyptir og þess vegna verður allt eftirlit með innflutningi á landbúnaðarafurðum að vera mjög strangt.
Frú forseti. Stjórnvöld hafa lagt fram þetta frumvarp til að bregðast við þeirri erfiðu stöðu sem landbúnaðurinn er í og hyggjast taka upp fyrra fyrirkomulag næsta árið og fram til 1. febrúar 2022. Ég sé reyndar á breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar að þetta tímabil er lengt. Það gengur út á að taka upp fyrra fyrirkomulag fyrir þennan samning sem ég nefndi. Með því er auðvitað leitast við að takmarka það tjón sem íslenskir framleiðendur hafa orðið fyrir og munu áfram verða fyrir ef áfram heldur sem horfir. En tjónið hefur orðið og bændur standa uppi með það samt sem áður. Frumvarpið snertir reyndar fleiri en bændur, frú forseti, því að það snertir auðvitað þá innflytjendur sem hafa flutt inn landbúnaðarvörurnar og umsvif þeirra munu takmarkast mjög, verði frumvarpið samþykkt.
Mikill munur er á stöðu íslenskra bænda, eins og ég nefndi, ef hún er borin saman við stöðu bænda í Evrópusambandinu. Íslenskir bændur standa illa í þeim samanburði og hafa lengi verið afgangsstærð í forgangsröðun stjórnvalda svo eftir er tekið. Hef ég nokkrum sinnum komið að því hér í ræðu. Í nefndaráliti minni hlutans, sem samanstendur af tveimur þingmönnum Miðflokksins, er það nefnt að bændur og afurðasölufyrirtæki í Noregi eru með undanþágur frá samkeppnislöggjöf og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur umfangsmiklar heimildir til að grípa til aðgerða til hagsbóta fyrir bændur og hefur gert það í tilefni heimsfaraldursins og nefnir minni hlutinn þar nokkur dæmi sem finna má í nefndarálitinu.
Frú forseti. Grípa þarf til fleiri og umfangsmeiri aðgerða en frumvarpið mælir fyrir um. Af þessu tilefni ætla ég að nefna að Miðflokkurinn hefur lagt fram ítarlega tillögu til að efla landbúnaðinn sem mikilvæga framleiðslugrein í landinu. Með þeirri tillögu er lagt til að forsætisráðherra verði falið að hrinda í framkvæmd 24 aðgerðum á sviði landbúnaðar í samráði við bændur. Meðal markmiða tillögunnar er að stórefla innlenda matvælaframleiðslu, tryggja matvæla- og fæðuöryggi, veita neytendum umhverfisvæna, holla og næringarríka fæðu, treysta afkomu bænda, auka sjálfbærni og umhverfisvernd, varðveita þekkingu, efla rannsóknir og menntun í landbúnaði, auka skilning á mikilvægi landbúnaðarframleiðslu og vernda landgæði. Þetta er m.a. markmið tillögu sem Miðflokkurinn hefur lagt fram hér á þingi.
Frú forseti. Við þurfum að grípa til skjótvirkra aðgerða. Minni hluti atvinnuveganefndar, þar sem eru hv. þingmenn Miðflokksins, Sigurður Páll Jónsson og Ólafur Ísleifsson, hefur lagt til að úthlutun á tollkvóta næsta árs verði frestað tímabundið meðan ráðrúm gefst til að rýna stöðuna og koma í veg fyrir langvarandi afleiðingar offramboðs búvara á innlenda framleiðendur. Þannig leggur minni hlutinn til, jafnframt þessari frestun, að ráðherra skipi starfshóp sem falið verði að gera tillögur um hvernig stemma megi stigu við neikvæðum áhrifum faraldursins og hvenær auglýsa skuli tollkvóta að nýju. Þessi tillaga er svolítið annars eðlis og gengur lengra en tillaga meiri hlutans. Við teljum, frú forseti, að við eigum við að etja mjög alvarlega þjóðfélagslega erfiðleika. Í vændum er efnahagslægð sem enginn hefur hugmynd um hversu löng verður en hún gæti verið ærið langvinn. Það er algerlega óljóst, frú forseti, hvenær þjóðarbúskapurinn réttir við. Það er alveg nauðsynlegt í mínum huga að það þarf sérstakar strangar aðgerðir til stuðnings bændum. Það er skref í þá átt að fresta úthlutun tollkvóta tímabundið og málið verði svo skoðað í starfshóp sem komi með tillögur um hvað skuli gera í framhaldinu. Við þurfum að grípa til öryggisráðstafana í ljósi ástandsins í þágu íslensks landbúnaðar.