151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[20:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Við ræðum hér mál sem er löngu tímabært að taka föstum tökum. Þrátt fyrir að Alþingi hafi að mestu leyti varið undanförnum mánuðum í aðgerðir til að bregðast við ástandinu vegna kórónuveirufaraldursins hefur vantað mjög mikið upp á að ein af undirstöðuatvinnugreinunum, sem vissulega hefur orðið fyrir áhrifum af þessu ástandi, hafi fengið að njóta þeirrar athygli sem hún verðskuldar, ég tala nú ekki um í ljósi þess ástands sem var ríkjandi í greininni áður en vandræðin vegna faraldursins bættust við.

Ég held ég verði að byrja á að fara aðeins yfir það, svo að þær furðukenningar sem við heyrðum hér fyrr í umræðunni breiðist ekki óhóflega út, hvað snýr raunverulega upp og hvað niður í þessum málum. Við heyrðum til að mynda þá hugmynd að tollar yrðu afnumdir en í staðinn myndi ríkið veita beina styrki, þ.e. að skattgreiðendur myndu borga fyrir niðurfellingu tolla. En hvað þýðir það í raun? Þetta fæli í sér þá furðulegu hugmynd — þetta er mjög í anda Viðreisnar — að íslenskir skattgreiðendur færu að styrkja Evrópusambandið. Íslenskir skattgreiðendur væru settir í þá stöðu að styrkja ESB því að þegar ríki semja sín á milli, um viðskiptasamninga, tollasamninga og slíkt, þá gefa þau ekki eftir stöðu nema fá eitthvað sambærilegt á móti. Með því eru þau að fórna hagsmunum sinna landsmanna; það segir sig sjálft að ef þau biðja ekki um neitt á móti er verið að fórna hagsmunum.

Það er helst hér á Íslandi af löndum í hinum vestræna heimi þar sem stjórnvöld hafa talið eðlilegt að gefa eftir stöðu sína fyrir ekkert eða lítið. Má m.a. vísa til loftslagsmálanna og samninga um þau þar sem allmargir íslenskir stjórnmálamenn hafa á einhvern hátt talið rétt að gefa eftir einhliða í viðræðum. Með því eru þeir að gefa eftir verðmæti og hagsmuni landsmanna og þetta hefur líka að nokkru leyti gerst hvað varðar landbúnaðinn. En nú er bætt um betur og fram kemur tillaga frá Viðreisn um að íslenskir skattgreiðendur verði settir í það að styrkja Evrópusambandið með því að Evrópusambandinu leyfist að flytja inn vörur í auknum mæli án þess að þurfa að greiða tolla. Þannig skilar styrkurinn sér til ESB en skattgreiðendur eiga svo að bæta tjónið hér innan lands. En það leysir ekki vandann. Eins og fleiri ræðumenn hafa bent á í þessari umræðu leysir það til að mynda ekki þann vanda sem felst í því að birgðir safnist upp. Þvert á móti eykur það þann vanda. Birgðirnar myndu áfram aukast enn meira og fótunum yrði kippt undan framleiðslunni hér, en Viðreisn ætlar alla vega í eitt ár, samkvæmt tillögum sínum, að greiða styrk. Maður hlýtur þá að velta fyrir sér: Er þessi styrkur í eitt ár sem, eins og ég útskýrði, rennur í raun til Evrópusambandsins ætlaður til þess að kippa fótunum undan greininni? Svo verði þessum styrkjum bara hætt? Það eru hinar raunverulegu afleiðingar þessara hugmynda flokksins.

Það er ekki eins og þetta muni skila sér í lægra vöruverði. Við höfum séð, rannsóknir hafa farið fram á því, ekki hvað síst í Finnlandi, að lækkun á matvælum til verslunarinnar skilar sér ekki til neytenda, hún eykur einfaldlega hagnað verslunarinnar. Þá má kannski velta fyrir sér hvort þetta sé ekki bara ríkisstyrkur Íslands til ESB heldur líka styrkur til verslunar — mjög furðuleg hugmynd og virðist ekkert hafa verið hugsuð lengra en eitt skref og jafnvel ekki einu sinni það. Það er mikilvægt að forðast að auka enn á vanda þessarar greinar sem þegar stendur frammi fyrir miklum áskorunum sem stjórnvöld hefðu þurft að bregðast við miklu fyrr. Í því samhengi minni ég á mál sem ég kem betur inn á hér á eftir, sem er heildaráætlun okkar í Miðflokknum um viðbrögð við stöðunni í íslenskum landbúnaði, mjög víðtæk áætlun og róttæk en það er það sem þarf til að bregðast við stöðunni sem hefur skapast.

Við þær aðstæður sem nú eru uppi í heiminum verja önnur ríki sitt atvinnulíf og sína hagsmuni og hafa sýnt það á síðustu misserum að þau eru tilbúin að beita í því skyni aðferðum sem þau myndu kannski ekki leyfa sér í eðlilegu árferði eða við eðlilegt ástand en gera núna með vísan til þess að um neyðarástand sé að ræða. Þau komast upp með það. Þau taka ákvörðun um að bregðast við ástandinu með því að grípa til aðgerða sem kannski hefði verið mótmælt við aðrar aðstæður en þau komast upp með það núna. Ætlum við ekki að gera slíkt hið sama? Ætlum við ein þjóða að sleppa því að grípa til þeirra ráðstafana sem ástand vegna heimsfaraldurs leyfir? Það er í raun skylda stjórnvalda að grípa til slíkra ráðstafana gagnvart landbúnaðinum ekki hvað síst, því að ef við gerum það ekki núna verður miklu erfiðara að gera það þegar bóluefnið er farið að virka og hlutirnir farnir að færast í eðlilegt horf.

Það var reyndar fullt tilefni til fyrir löngu að grípa til ráðstafana. Þar höfum við ekki hvað síst nefnt tollasamninginn frá 2015. Þingflokkur Miðflokksins lagði snemma á þessu kjörtímabili fram þingsályktunartillögu um að endursamið yrði um þann samning eða honum sagt upp. Svo höfum við vísað til þess að Bretland sé gengið úr ESB og það breyti forsendum samningsins. En aðalatriðið er að þessi samningur hefur skaðað íslenskan landbúnað. Hann virkar ekki eins og hann var kynntur og því er mjög mikilvægt að endurskoða þennan samning eða segja honum upp og gera það sem fyrst.

Hvað varðar stöðu landbúnaðar í Evrópusambandinu þá var sérkennilegt — sérkennilegt en kannski ekki óvænt — að heyra aðdáun hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur á því hvernig þetta er gert í Evrópusambandinu. Hún fór reyndar ekki nánar út í það en landbúnaður í ESB er ekki hvað síst styrktur út frá landrými, það fer eftir því hversu mikið landrými er undir, og mönnum er borgað fyrir að framleiða ekki vörur. Fyrir vikið eru það í mörgum tilvikum stórfyrirtæki sem fá mest af styrkjum Evrópusambandsins til landbúnaðarmála. En Evrópusambandið ver þó sinn markað. Tollabandalagið við Evrópusambandið ver sinn markað af mikilli hörku en það er líklega ekki fyrirmynd sem þóknast Viðreisn sem vill að við, eins og ég gat um áðan, hefjum ríkisstyrki til Evrópusambandsins til að auðvelda því að flytja hingað varning og eyðileggja þar með íslenska markaðinn. Þetta er svo galin hugmynd að ég kemst bara ekki almennilega yfir þetta.

Hvað telja menn að vöruverð myndi lækka lengi ef erlend ríki fengju að hrúga umframframleiðslu sinni inn á íslenska markaðinn og drepa innlendu framleiðsluna? Telja menn líkur á því að verðið héldist áfram eins lágt þegar búið væri að þurrka innlendu samkeppnina í burtu? Er ekki líklegt að verð myndi hækka aftur, fyrir utan það sem ég gat um áðan, að þetta eykur einfaldlega álagningu verslana? Fyrst ég er nú byrjaður á þessum viðvörunarorðum um hugmyndir Viðreisnar o.fl. í þessum málum hefur mörgum þeirra sem fyrir þessu töluðu orðið tíðrætt um frelsi. Þá minni ég á að sterkur landbúnaður er á margan hátt forsenda frelsis fyrir þjóð. Að hafa eigin matvælaframleiðslu er forsenda frelsis því að ella eru menn öðrum háðir um það sem er hvað mikilvægast, að hafa næga fæðu.

Þessi grein skiptir okkur gríðarlega miklu máli, Íslendinga alla, efnahagslega. Hún sparar gjaldeyri sem nemur tugum milljarða króna á ári. Ég þreytist seint að minna á að ekki er nema rúmur áratugur síðan íslenskur landbúnaður bjargaði landinu frá gjaldþroti þegar engu mátti muna að við hefðum ekki nægan gjaldeyri til að flytja inn helstu nauðsynjavörur, lyf, eldsneyti og slíkt. Ef ekki hefði verið fyrir þann gjaldeyrissparnað sem íslenskur landbúnaður skapar hefðum við líklega lent öfugu megin við núllið. En þakkirnar eru litlar í stefnu stjórnvalda því að ítrekað hefur verið þrengt að greininni, grein sem stendur undir þúsundum starfa, til að mynda um 1.200 störfum á Norðausturlandi, en ekki bara það heldur stendur undir svo fjölmörgu öðru líka, öðru atvinnulífi og byggðinni sjálfri. Ef landbúnaðar nyti ekki við væri fótunum kippt undan byggðarlögum víða um land og það myndi leiða af sér keðjuverkun sem gæti vart endað öðruvísi en að Ísland yrði borgríki þar sem við reiddum okkur á innflutt matvæli frá Evrópusambandinu á sama tíma og við, samkvæmt áætlun Viðreisnar, fáum skattgreiðendur til að styrkja ESB.

En nú helst margt í hendur, og hefur gert um nokkurt skeið, við að gera landbúnaðinum erfitt fyrir. Það gerir aðgerðir afskaplega aðkallandi. Stöðugt er nýjum reglugerðum bætt á þessa grein. Oft eru þetta reglugerðir sem er dýrt að fylgja en skekkja um leið samkeppnisstöðu gagnvart framleiðslu annars staðar því að eins og svo oft virðist vera gengið lengra í innleiðingu Evrópureglugerða hér en annars staðar og íslenskir bændur þurfa að uppfylla strangari skilyrði en keppinautar þeirra í öðrum löndum. Matvælaframleiðendur í öðrum ríkjum reka oft og tíðum, eins og menn þekkja, ekki fjölskyldubú heldur verksmiðjubú, stórfyrirtæki sem framleiða mat. Búvörusamningar hafa verið til þess fallnir að draga saman greinina frekar en að leggja grunn að sókn fyrir landbúnað. Tollasamningurinn, sem ég nefndi áðan, hefur reynst mjög íþyngjandi. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sýndi reyndar strax í upphafi viðhorf stjórnarinnar til landbúnaðar. Þar var landbúnaður, bændur þar með, eina atvinnugreinin þar sem ekki var gert ráð fyrir auknum framlögum út kjörtímabilið. Þvert á móti var gert ráð fyrir að ár eftir ár myndu framlög lækka. Það birtist að sjálfsögðu í kjörum bænda. Á meðan allar aðrar stéttir sem ríkið kaupir þjónustu af hafa að meira eða minna leyti fengið verulegar launahækkanir á undanförnum árum, kjör batnað mjög og kaupmáttur aukist, hefur það sama ekki átt við um eina grein, landbúnaðinn. Svo er því bætt við að leyfa innflutning á hráu, ófrystu kjöti og ógerilsneyddum matvælum frá ríkjum þar sem aðstæður við framleiðslu eru ekki eins góðar og hér og framleiðslukostnaður lægri, fyrir utan það að þar með er opnað á aukinn innflutning frá löndum sem nota sýklalyf og vaxtarhormón og önnur lyf miklu meira en tíðkast í íslenskum landbúnaði þar sem slíkt er afar sjaldgæft — á meðan þetta er regla frekar en undantekning annar staðar. En við þetta eiga íslenskir bændur að keppa í auknum mæli. Svo hefur afurðaverð haldið áfram að lækka og loks bætist þessi heimsfaraldur kórónuveiru við.

Þetta allt samantekið er bara lýsing á neyðarástandi í þessari undirstöðuatvinnugrein sem hefur haldið lífi í landsmönnum frá landnámi, er mikilvægur liður í öryggi okkar og undirstaða byggðar hringinn í kringum landið. Af því að ráðherrum ríkisstjórnarinnar verður tíðrætt um umhverfisvernd þessa dagana má líka minna á að eitthvað það besta sem við getum gert fyrir umhverfið er að styðja við íslenska matvælaframleiðslu og neyta íslenskra matvæla í meiri mæli en nú er gert, svo að ekki sé minnst á aðgerðir á borð við skógrækt. En alls ekki, frú forseti, að fara að moka ofan í mýrar. Með Evrópusambandskerfinu, þar sem farið yrði að veita landeigendum styrk fyrir að framleiða ekki á landinu, yrði kannski mokað ofan í skurði og landið þannig eyðilagt hvað varðar möguleika á ræktun. Hugsanlega er það framtíðarsýnin sem þeir sem virðast ætla að leyfa þessari grein að fjara út sjá fyrir sér, að fara að borga landeigendum, og öllum þessum erlendu landeigendum sem hafa safnað landi, fyrir að framleiða ekki og moka ofan í skurðina.

Það er ekki framtíðarsýn sem hugnast mér eða okkur í Miðflokknum. Þess vegna lögðum við fram áætlunina sem ég minntist aðeins á hér áðan. Í fjölmörgum liðum birtist þar heildartillaga að lausn á vanda íslensks landbúnaðar og um leið möguleiki á því að nýta sóknarfærin, snúa vörn í sókn. Fyrsta skrefið er að stjórnvöld hætti að þrengja að greininni, grípi til ráðstafana sem taka á neyðarástandinu sem er akkúrat núna. Mikilvægur liður í því er að fresta útboði tollkvóta fyrir árið 2021, eins og lagt er til í breytingartillögu hv. þingmanna Sigurðar Páls Jónssonar og Ólafs Ísleifssonar. Það er gríðarlega mikilvægt að þessi tillaga verði samþykkt og að ekki verði, við þetta neyðarástand, ráðist í útboð tollkvóta á meðan löndin allt í kringum okkur eru að verja sinn landbúnað. Það væri í raun hneisa ef Ísland ætlaði að skera sig úr hvað þetta varðar, ef við, með þessa mikilvægu grein í nauðvörn, ætluðum að bæta í vandann. Það má ekki gerast, frú forseti. Svo þarf einfaldlega að meta hvort reyna eigi að endursemja um tollasamninginn eða einfaldlega að segja honum upp.

Nú er tíminn til að bregðast við. Ef við gerum það ekki núna verður það dýrara og erfiðara eftir því sem tíminn líður þar til kemur að því að ekki verður aftur snúið. Þá verður of seint að iðrast þegar við sjáum í raun hvaða áhrif það myndi hafa að leyfa íslenskum landbúnaði að fjara út. Nú er tíminn fyrir sókn og vörn fyrir þessa undirstöðugrein.